hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegur forseti. Það er í rauninni alveg ótrúlegt að hlusta á þingflokksformann Samfylkingarinnar koma hér upp og skamma mig fyrir það hvernig dagskrá þingsins er sett upp. Það er ekki ég sem raða á dagskrá þingsins, það var hann sem setti þetta mál á og kannski fyrir hann sem finnst að allt sem snýr að Evrópusambandinu og öll lög og reglur sem koma frá Evrópusambandinu eigi að renna hér óhindrað í gegn og án umræðu. Það getur vel verið að honum hafi bara fundist að þetta yrði lítið mál og yrði klárað hér á tíu mínútum, en það er bara ekki svo. Stærstu mótmælin við þessu máli voru þau að það var fast í þingflokki Sjálfstæðisflokksins og átti bara ekkert að fara þaðan. Ég vildi að það hefði líka verið þannig hjá Samfylkingunni en það er bara ekki þannig. En það er ekki Sjálfstæðisflokkurinn sem setur þetta nr. 1 á dagskrá þingsins og ég bíð spenntur eftir því að koma og ræða næstu mál, hafðu ekki áhyggjur af því sem þingmaður Norðausturkjördæmis. Þannig að þú verður að ræða þetta innan eigin flokks hvernig dagskráin er sett upp.