156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

100. mál
[13:27]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Þetta er alveg með ólíkindum, að nýr þingmaður, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, komi hérna upp á fyrstu dögum og fari að saka stjórnarandstöðuna um málþóf. Hvað, út af því að það voru svona sirka sex þingmenn sem hafa farið á mælendaskrá, sex þingmenn? Ég ætla bara að biðja hv. þingmann og kannski stjórnarmeirihlutann allan, ef hann er alveg titrandi þarna frammi í hliðarsölum, að bara slappa aðeins af. Það hefði nú kannski farið betur á því ef það hefðu almennt skapast almennar umræður um það þegar við erum að innleiða löggjöf frá Brussel. Það er bara sjálfsagt. Við erum að innleiða lög á Íslandi. Og tappamálið, eins og margir hafa sagt er þetta örugglega ekki stærsta mál í heimi en það eru margir þarna úti sem finnst þetta bara býsna stórt mál. Og er þá hv. þingmaður að segja það að lýðræðiskjörnir fulltrúar á Alþingi eigi ekki að fá tækifæri til að koma upp í ræðustól og ræða þetta mál? Hvurs lags vitleysa er þetta?