156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

100. mál
[13:43]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson flutti hér ágæta ræðu þó að mér þætti niðurlagið í henni kannski óþarft. Hann spyr spurninga sem varða breytingar á gengjum á flöskunum sem eru þá til komnar með nýju flöskunum með áföstu töppunum. Mér þótti þetta áhugaverður punktur hjá hv. þingmanninum því að ég þekki það sjálfur verandi svona hobbíhestabóndi og veit það frá mörgum félögum mínum sem eru í landbúnaði að margar af þessum flöskum öðlast talsvert langt líf og eru marg, margnýttar. Í þessu samhengi datt mér í hug, og ég bara viðurkenni það, herra forseti, að ég var ekki búinn að lesa mér nógu vel til og spyr því hv. þm. Þórarin Inga Pétursson, sem ég tel að hafi þaullesið þetta, hvernig það er með hvort búið sé að festa tappana á ormalyfsflöskunum sem við landsbyggðardúddarnir notum dálítið af, bæði í nautgripi, sauðfé og hross. Nú er orðið nokkuð síðan ég keypti síðast slíka flösku og ef ég man rétt þá var ekki komin festing á hana. Mig rennir í grun að þær heyri ekki undir þetta frumvarp en hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson veit kannski betur.