hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Jú, það vill þannig til að ég var búinn að lesa greinargerðina. Á bls. 6 er tekið dæmi um plastvörur sem þetta ákvæði tekur ekki til. Þar er nú þó nokkuð af ílátum sem eru tiltekin og mér sýnist nú að það horfi svo sem hér til þeirra umbúða sem hv. þingmaður vísaði til þótt þeirra sé svo sem ekki getið beint. Ég hef grun um að þær séu í þeim flokki, enda erum við svo sem að tala sem betur fer um mun minni notkun hvað það varðar. Það er skilmerkilega komið inn á það í 1. gr. þar sem er tekið ágætlega fyrir til hvaða umbúða eða plastvara þetta ákvæði tekur ekki. Ég ætla ekki, virðulegi forseti, að þreyta þingheim sérstaklega á því að vera að lesa það hér upp og hvet bara hv. þingmann til að fara ágætlega í gegnum frumvarpið. Þetta er skilmerkilegt og vel upp sett. Það eru þarna ákveðnir þættir sem fá mig nú stundum til að brosa út í annað eins og hv. þm. Árni Helgason kom inn á í sinni ágætu ræðu.