156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

100. mál
[13:48]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Við erum að ræða hér nokkuð áhugavert mál og ég vil taka undir ábendingar hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur hér áðan gagnvart hv. þingflokksformanni Samfylkingarinnar um að það er ekki tímabært að fara á taugum strax yfir því að hér sé eitthvert málþóf í gangi. Þetta getur aldrei kallast það eftir nokkrar ræður og ekkert óeðlilegt að menn taki þetta til umræðu og setji það í svolítið stærra samhengi. Umhverfismál skipa eðli máls samkvæmt stóran sess orðið í okkar samfélagi og hafa gert það um langa tíð. Þetta hefur verið ágreiningsmál í mörgu tilliti um það hversu langt er gengið og hversu skammt er gengið í öðrum tilfellum. Er ágætt að minnast þeirra sem hófu þessa umræðu á sínum tíma, sem voru þingmenn Sjálfstæðisflokksins, og settu fyrstu löggjöfina sem að þessu sneri í hinu ágæta landi okkar.

Við hljótum að velta því fyrir okkur í allri þessari stóru mynd, þegar kemur að umræðunni um þessi mál, hvort við höfum alltaf gengið veginn til góðs. Eins og farið hefur verið ágætlega yfir hér í öðrum ræðum þá er regluverk Evrópusambandsins ákaflega íþyngjandi í mörgu tilliti og afleiðingar þess eru að birtast okkur í þeim samdrætti sem Evrópa stendur frammi fyrir í dag. Nýleg skýrsla fyrrverandi seðlabankastjóra Evrópu fer ágætlega yfir það, á einum 500 síðum, held ég, hve samkeppnishæfni Evrópusambandsins hefur dregist saman og hverjar ástæðurnar eru fyrir því. Þetta er auðvitað mjög alvarlegt og sérstaklega alvarlegt fyrir þau lönd sem eiga undir. Við þurfum auðvitað að gæta hófs í því að skoða allar þær reglur og það regluverk sem við erum skuldbundin til að innleiða. Oft hefur verið minnst á þessa gullhúðun sem við þurfum að vanda okkur með. En við megum ekki smitast of mikið af þessu vegna þess að það er staðreynd að við þurfum að auka framleiðni í þessu landi á hverja unna einingu og verðmætasköpun og við stöndum okkur ágætlega í því. En vegferð Evrópusambandsins er akkúrat í hina áttina og það er alvarlegt þegar framleiðslufyrirtæki eru farin að yfirgefa lönd Evrópusambandsins vegna íþyngjandi regluverks, og það er komið ágætlega inn á þetta í ítarlegri skýrslu seðlabankastjórans fyrrverandi.

Plast er auðvitað byltingarkennt efni og til margra hluta mjög gott. Það er líka endurvinnanlegt upp að vissu marki. Plast er ekki bara plast, það eru fjölmargar tegundir af plasti sem eru á markaðnum og það er kannski það sem gerir endurvinnsluna erfiðari, það er flokkunin á því eftir hinum mismunandi tegundum. Það gerir verkið allt miklu vandasamara. Sumt plast er líka betur fallið til endurvinnslu en annað og á köflum höfum við kannski dæmi fyrir okkur þar sem við erum hreinlega að ganga of langt í þessari afplastvæðingu í stað þess að beina sjónum okkar frekar að plasti sem er einfaldara í endurvinnslu, er hægt að endurvinna oftar en margar aðrar tegundir. Maður veltir því t.d. fyrir sér hvort það hafi verið sniðugt skref sem fyrrverandi umhverfisráðherra, sem var úr þingflokki Vinstri grænna, steig þegar hann innleiddi hér bann við plastpokum í verslunum. Og hvert hefur þetta leitt okkur? Þetta hefur leitt okkur til notkunar á einhvers konar maíspokum, held ég að það sé kallað, sem eru þess eðlis að þeim er jú, af okkur almenningi sem erum að henda í sorpið og erum að reyna að standa okkur vel í að flokka, hent í plasttunnuna. Staðreyndin er sú að þessir pokar eyðileggja allt plast sem þeir komast í samband við. Þannig getur mjög lítið magn af slíkum plastpokum eyðilagt heilan gám af öðru plasti til endurvinnslu. Og þá getum við velt þessari stóru mynd fyrir okkur. Var eitthvert vit í þessu? Annað er svo þessi aukna notkun á bréfpokum en við vitum öll hvaðan þeir koma. Þeir koma úr trjám úr skógum heimsins og það hefur gjarnan verið talað um að við þurfum að draga svolítið úr þeirri notkun og passa okkur á þeim vettvangi þó að auðvitað sé alltaf hægt að planta meira af trjám en notuð eru. Á Íslandi erum við þó alla vega á þeim stað að við erum alltaf að auka skógrækt og höfum mikil tækifæri til þess. En víða um heim er verið að ganga á skóga. Og svo eru önnur efni sem eru notuð í þessa bréfpokaframleiðslu sem eru alls konar lím og efni sem eru kannski ekkert mjög góð fyrir umhverfið.

Ég segi þess vegna að við þurfum kannski svolítið að skoða þetta í stóra samhenginu. Það ber mig þá að því sem hefur aftur á móti verið átakamál hér á Íslandi og það er slagurinn um álframleiðslu og umræðan um orkuframleiðslu til orkufreks iðnaðar. Það hefur verið baráttumál síðan 1960 þegar, undir forystu Sjálfstæðismanna, farið var út í orkufrekan iðnað á Íslandi sem var síðan lykillinn að mörgu öðru. Það gerðist með því að semja við stórt álfyrirtæki um að hefja framleiðslu hér og það var auðvitað stórkostlegt afrek að við skyldum ná að laða hingað stórfyrirtæki, eins einfaldir og prímitívir allir innviðir voru á þeim tíma. Það tókst og áhrifin af því voru þau að þessi fámenna þjóð, þá töldu íbúarnir eitthvað á þriðja hundrað þúsund, gat í stórum skala farið að framleiða raforku, eitthvað sem við hefðum aldrei getað gert á Íslandi. Raforkuframleiðsla á Íslandi hefði byggst upp í einhvers konar eyjafyrirkomulagi út um allt land, hvert eyjasvæði hefði bara verið út af fyrir sig með sína raforkuframleiðslu og notkun. En við gátum stigið þessi stóru skref og byggt upp alvöruvirkjanir með hagkvæmum hætti og flutningskerfi til að flytja raforkuna, eitthvað sem okkur hefði verið algjörlega ofviða og menn gerðu sér grein fyrir á þeim tíma. En það hefur verið mikill slagur um þetta, virðulegur forseti, alla tíð, mikil pólitísk barátta, og það eru kannski sömu flokkarnir, m.a. þeir flokkar sem nú eru í ríkisstjórn, sem hafa verið andvígir þessu. Margir í pólitíkinni tala jafnvel um að það eigi bara að loka þessum verksmiðjum og það er á sama tíma, ef við setjum þetta svo aftur í stóra samhengið, og ál er kallaður græni málmurinn og menn myndu eflaust, alla vega flestir og ættu að vera allir sem hneigjast að einhvers konar náttúruvernd, hoppa hæð sína af fögnuði ef við værum að finna þetta upp í dag, í þeirri stöðu sem við erum í. En það er búið að framleiða ál í heiminum í 120 ár og ál er endurunnið upp í yfir 70% af öllu áli sem búið er að framleiða í heiminum. Það hefur ekkert annað efni slíkt endurvinnsluhlutfall. Ef við tökum til að mynda plast og gler nær það ekki einum þriðja af endurvinnsluhlutfalli áls. Það er því ákveðinn tvískinnungsháttur þegar við erum síðan að gagnrýna þessa framleiðslu þar sem þetta er framleitt með orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum á sama tíma og við erum að stíga einhver svona skref til að sýnast svo hliðholl þessum málum. Í skýrslu Sameinuðu þjóðanna frá 2011, þá af 60 málmtegundum, eru einungis 18 sem eru með meira en 50% endurvinnsluhlutfall og álið er þar hæst. Ál í dósum til að mynda er 90% endurunnið í Evrópu og það kostar bara 5% af orkunni, virðulegur forseti, að endurvinna ál. Og ekki nóg með það, það er hægt að endurvinna það endalaust. Það stoppar aldrei. Það er ekki eins og plastið, það gengur úr sér eftir hverja endurvinnslu og þú getur bara nota það í ákveðinn tíma og ákveðið oft.

Og af hverju er ég að velta þessu upp hér í umræðunni um það hvernig við eigum að haga reglum um það hvernig plasttappar eða plastlok eru fest á plastumbúðir? Auðvitað erum við alls ekki að fara að hætta að nota plast. Það er gríðarlega merkileg uppgötvun og gríðarlega mikilvægt í svo mörgu tilliti. En það væri kannski ástæða til þess að horfa á stóru myndina og segja: Ja, ættum við kannski að reyna að hætta að nota plast þar sem við þurfum þess ekki og efla til að mynda innlenda framleiðslu í áli og gera það að skilyrði að drykkjarumbúðir, eins og þær sem við erum að fjalla hér um í plastflöskum, verði bara eingöngu úr áli á Íslandi og vera þar með til fyrirmyndar þegar kemur að þessari örplastmengun að þessu leyti? Það hlýtur að vera ástæða, virðulegur forseti, til að taka a.m.k. slík sjónarmið til umræðu og nota það til þess, getum við sagt, að hreinsa svolítið andrúmsloftið í kringum það hvert við erum að stefna í þessum málum almennt.

Við höfum verið að stíga gríðarlega stór skref í því að íþyngja íslensku atvinnulífi og verðmætasköpun út frá umhverfissjónarmiðum. Við getum til að mynda velt þessu fyrir okkur í tilfelli kolefnisskatta. Kolefnisskattar eru ný tegund af sköttum sem hafa komið mjög inn á síðustu árum og við höfum verið að leggja á þessa kolefnisskatta. Og hvernig skyldu þeir þá virka og til hvers eru þeir settir? Væntanlega erum við að velta því fyrir okkur en markmið löggjafans hvað varðar þá hlið mála snýr að því að reyna að örva atvinnulífið, og auðvitað einstaklinga og heimili, til að fjárfesta í hlutum sem hafa lægra kolefnisspor. Við hlaupum náttúrlega aldrei fram úr tækninni í þeim efnum, hún verður alltaf einhvers konar þröskuldur í þeim skilningi. Þá getum við til að mynda tekið kolefnisskattana sem við leggjum á útgerðina sem er í dag kannski einhver stærsti þáttur í kolefnismengun hjá okkur eðli máls samkvæmt. Við erum fiskveiðiþjóð og veiðiflotinn okkar notar jarðefnaeldsneyti til að knýja starfsemina áfram, enda engin tækni komin til að leysa það af hólmi. Við leggjum á skatt til að refsa þeim fyrir það að stíga ekki stærri skref. Skyldu slíkir skattar, virðulegur forseti, ná að stuðla að eða örva það sem er markmið þeirra? Ég held ekki. Ég held að þetta sé dæmi um það að slík skattheimta vinnur gegn markmiðum sínum vegna þess að hún er íþyngjandi fyrir viðkomandi atvinnugreinar. Hún dregur úr getu þeirra til að fjárfesta í nýjustu tækni sem er eina leiðin til að draga úr kolefnisspori sínu. Í tilfelli útgerðanna, hvort sem það eru stærri útgerðir eða smærri, er það það að endurnýja annaðhvort vélakost í bátum og skipum eða að smíða ný skip. Og þá skattleggjum við í stað þess að búa til hvata. Þetta á alveg erindi inn í umræðuna um það mál sem við erum að ræða hér vegna þess að það er löngu tímabært að taka þessa umræðu á breiðari vettvangi á hinu háa Alþingi; það er í raun alveg nauðsynlegt. Við horfum nefnilega upp á þá þróun sem er að verða í nágrannalöndum okkar með þessu íþyngjandi regluverki og ef við ætlum að vera í þeim félagsskap alla leið og ganga í mörgum tilfellum jafnvel enn lengra en við þurfum að gera, samkvæmt þeim skuldbindingum sem við höfum tekist á hendur, erum við að stefna í það að draga úr samkeppnishæfni landsins, draga úr verðmætasköpun í landinu, fækka störfum o.s.frv.

Þetta er svona stóra samhengið í þessu, virðulegur forseti. Í hinu litla plasttappamáli er hægt að velta upp stóra samhenginu og velta því upp hvort við erum á réttri leið og hvort við ættum sem stórt álframleiðsluland að gera það að tillögu okkar að álið verði meira notað og þá auðvitað undir þeim formerkjum að það sé grænt ál.