hollustuhættir og mengunarvarnir.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Gunnarssyni fyrir prýðisgóða ræðu. Mig langaði aðeins að ræða við hann um það sem hann nefndi undir lok ræðunnar, þ.e. um regluverkið sem er íþyngjandi og er að verða meira og meira íþyngjandi. Nú hefur hv. þm. Jón Gunnarsson verið lengur hér en ég. Í ljósi þess að þetta mál er þess eðlis að Bandaríkjamenn ætla ekki að halda áfram með þetta, eins og ég nefndi áðan, og Evrópusambandið segist ætla að draga úr íþyngjandi regluverki og hæstv. ráðherra gefur í skyn að við séum að setja allt á annan endann með því að bíða með eða hætta við málið, langar mig að spyrja: Er eitthvað því til fyrirstöðu að bíða með málið og sjá hvort Evrópa sjálf ætlar kannski aðeins að draga úr? Spurningin er: Er hv. þingmaður hræddur við, ef við bara setjum þetta mál aðeins á ís, að það hafi einhver áhrif á okkar samning?