hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegur forseti. Ég hef engar stórar áhyggjur af því að þetta í sjálfu sér litla mál hafi einhver slík áhrif. Það er alla vega svolítið sérstakt að þetta skuli vera með fyrstu málum ríkisstjórnarinnar sem gefur okkur þá tilefni til að ræða þetta, eins og ég var að segja, á breiðari vettvangi. Ég hef miklu meiri áhyggjur af hinu: Eins og fram hefur komið lét þáverandi hæstv. fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson, fara í mikla vinnu við að greina regluverk Evrópusambandsins sem hefur verið innleitt hér á landi. Þáverandi hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, fór í það að láta vinna alveg sérstaklega úttekt í sínu ráðuneyti, á sínum málaflokkum, varðandi gullhúðun, sem kölluð er. Það kemur í ljós að við höfum verið að innleiða regluverk Evrópusambandsins með miklu meira íþyngjandi hætti en við ættum að gera. Og við erum hér öll sem höfum verið í þessum sal í einhvern tíma samsek í þeim efnum. En það vita líka allir hvernig verkferlarnir eru í þessu. Þetta er þannig að þetta kemur frá ráðuneytunum, það eru fyrst og fremst embættismenn sem fjalla um þetta og skýrleikinn er ekki alltaf nægur. Það er mikið á borðum þingmanna til að setja sig inn í og það er kannski ekki alveg við þá að sakast. Nú er búið að breyta þessu ferli að einhverju leyti en ég hefði haldið að til að mynda fyrir þá flokka sem nú mynda ríkisstjórn í landinu hefði þetta verið mál sem ég hefði haldið að kæmi fram í einhverjum forgangi frekar en það sem við erum að horfa hér upp á og gefur okkur svo sem, eins og ég segi, ágætt tilefni til að ræða þetta á breiðari vettvangi. Það væri áhugavert að heyra það frá hæstv. ráðherra málaflokksins hvert hann vilji stefna í þessum efnum í stóra samhenginu, þegar við höfum tækifæri til að ræða þetta hér úr þessum stól.