156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

100. mál
[14:10]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Í 2. gr. þessa frumvarps er eftirfarandi texta að finna:

„Lög þessi fela í sér innleiðingu á 1. mgr. 6. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/904 frá 5. júní 2019 um að draga úr áhrifum tiltekinna plastvara á umhverfið eins og hún var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 240/2021 frá 24. september 2021.“

Þarna er um að ræða innleiðingu sem við erum skuldbundin til að gera samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið.

Ég velti fyrir mér, af því að við vorum bara fyrir nokkrum dögum að samþykkja að vísa til nefndar frumvarpi um siglingavernd sem var líka innleiðingarmál, en þar stendur m.a.: „Breytingunum er ætlað að bregðast við athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) um ófullnægjandi innleiðingu Evrópureglna.“ Við vorum sammála um það þegar við vorum að vísa því máli til nefndar að við værum bara að gera þetta eins og ætti að gera þetta, það ætti bara eftir að færa þetta í texta í lögin okkar. Það sama gildir um þetta mál. Við erum búin að gera þetta. Það vissu allir sem störfuðu í þessum geira að þetta væri yfirvofandi og þess vegna brugðust þeir bara við, þeir brugðust hraðar við en þingið.

Maður spyr sig: Hver er munurinn á þessari innleiðingu eða innleiðingunni um siglingaverndina þegar okkur ber skylda til að innleiða samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið?