156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

100. mál
[14:12]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Innleiðing frá september 2021, gott ef það var bara ekki á afmælisdaginn minn sem hún fór í gegn, það er svo sem hægt að fletta því upp. Já, að gera þetta eins og við eigum að gera þetta. Það er nú það sem við höfum kannski verið að gera allt of mikið af, virðulegur forseti, að gera hlutina eins og við höldum að eigi að gera þá. Nú hefur þessi úttekt sem ég vitnaði til áðan, sem hæstv. þáverandi fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson, og hæstv. þáverandi umhverfisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, settu af stað, sýnt að við höfum bara alls ekki verið að gera þetta eins og við eigum að gera þetta. Við höfum verið að gullhúða þetta, eins og það er kallað. Við höfum verið að búa til enn meira íþyngjandi reglur en við höfum átt að gera. Það hlýtur að vera forgangsmál okkar núna að fara ítarlega yfir þetta á grundvelli þeirra skýrslna sem fyrir liggja og draga úr þessu umfangi, létta höftum, óþarfahöftum sem við höfum sett á íslenskt athafnalíf. Það snýst um samkeppnishæfni landsins og að gera þetta eins og við hefðum átt að gera þetta en ekki eins og við höldum að við eigum að gera þetta. Ég er ekkert að segja að við á endanum munum ekki þurfa að innleiða þessa tilskipun sem hluta af því samkomulagi og þeim samningi sem við erum aðilar að við Evrópusambandið. Það er mjög líklega niðurstaðan. Það þýðir þó ekki að ekki sé ástæða til, sérstaklega í ljósi reynslunnar, að taka þetta til ítarlegrar umfjöllunar í þingsal. Það er bara mjög mikilvægt og að velta því upp í stóra samhenginu hvert við erum að stefna og hvaða aðrar lausnir við getum fundið til að efla (Forseti hringir.) þrótt og kraft í íslensku atvinnulífi í stað þess að vera alltaf að hugsa um stöðug höft og erfiðleika því til handa.