hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svar hans. Gullhúðun, blýhúðun eða hvað sem menn vilja kalla þetta getur stundum verið af hinu góða ef við ætlum að innleiða frekari og aukin réttindi heldur en innleiðing Evróputilskipunar felur í sér. Það getur vel verið að maður geti fundið eitthvað sem stendur í þeim en við skulum bara minna á hverjir hafa stjórnað landinu síðustu ár og áratugi. Hverjir hafa þá verið að gullhúða?
Mig langar að nefna, af því að ég hef takmarkaðan tíma, að ég og hv. þingmaður vorum í viðtali á Bylgjunni í morgun. Samgöngumál voru viðfangsefnið þar og innviðaskuld sem hefur orðið til, m.a. í tíð fyrrverandi ríkisstjórnar. Þar var hv. þingmanni tíðrætt um orkumál og skaut þeim oft inn á milli þess sem við vorum að ræða samgöngurnar. Mig langar að spyrja hv. þingmann, af því að ég veit að hann brennur í skinninu að ræða orkumál, hvers vegna við látum þetta mál ekki ganga til nefndar og tökum þá umræðuna þar og drífum okkur í áhugamál ráðherrans, orkumál, sem er næst á dagskrá.