hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegur forseti. Sá sem hér stendur var í fyrstu umræðunni við ráðherra á þessu þingi, sérstakri umræðu um orkumál, fyrir nokkrum dögum og fór þar ágætlega ítarlega yfir þetta þó að margt væri ósagt. Auðvitað tengist þetta allt saman. Ég skil ekki af hverju það þarf að draga úr þeirri umræðu sem við erum í hér um umhverfismálin þó að hér sé opnað ákveðið pandórubox á nálgunina á umhverfið og orkuframleiðslu á Íslandi. Það er örugglega tilefni fyrir hv. þingmenn til að eyða deginum í að ræða svolítið um þá mikilvægu tengingu. Eins og við vitum höfum við gengið lengra en nokkur önnur þjóð í því að virkja endurnýjanlega orku og erum með langhæsta hlutfall af nýtingu á slíkri orku í allri okkar framleiðslu, húshitun og öðru og höfum gengið eins langt og tæknin leyfir okkur og erum að þróa það stöðugt að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis til þess að geta meira snúið okkur að okkar grænu orkugjöfum.
Af því að hér er rifjuð upp sagan þá tók ég það fram áðan alveg sérstaklega að ég tek alveg á mig það sem ég á í þessari svokölluðu gullhúðun ásamt öðrum. En þó erum það við sem fórum að spyrna við fótum, Sjálfstæðismenn, draga þetta fram og láta vinnuna í gang. Það er ykkar sem eruð núna við stjórn að fylgja því eftir. Ég held að þessi umræða um orkumál á eftir sé gríðarlega mikilvæg, tímaskekkja rammaáætlunar. Ég hef því miður ekki tækifæri til að vera við þá umræðu í dag (Forseti hringir.) því að það er nú þannig með okkur þingmennina að við bókum okkur hér og þar um landið á einhverja fundi og fyrirsjáanleiki er lítill í störfunum. Ég hefði ekki verið búinn að bóka mig (Forseti hringir.) á slíkan fund úti á landi síðar í dag ef ég hefði vitað að sú umræða væri en hér er fullur salur af góðu fólki til að taka þá umræðu til enda það sem eftir lifir dags.