Öryggi og varnir Íslands, munnleg skýrsla utanríkisráðherra.
Virðulegi forseti. Margt hefur borið til tíðinda á sviði alþjóðamála undanfarna daga sem gefur fullt tilefni til umræðu um öryggismál í Evrópu og þar á meðal um öryggi og varnir okkar Íslendinga. Hér vísa ég að sjálfsögðu til þróunar mála í tengslum við m.a. fundi síðastliðinnar viku á vettvangi Atlantshafsbandalagsins og öryggisráðstefnunnar í München, en ekki síður til vendinga síðustu daga sem varða einmitt viðræður um framtíð Úkraínu, nú þegar nær þrjú ár eru liðin frá upphafi allsherjarinnrásar Rússlands.
Bandaríkin hafa verið eitt nánasta og traustasta samstarfsríki Íslands allt frá lýðveldisstofnun, hvort sem litið er til varnarmála, viðskipta eða menningarlegra tengsla okkar. Okkar sameiginlegu verndarhagsmunir eru skýrir á Norður-Atlantshafi og þeir hafa ekki breyst og ef eitthvað er hefur vægi þessara sameiginlegu hagsmuna eingöngu aukist vegna umsvifa á norðurslóðum. Þegar svo náið samstarfsríki eins og Bandaríkin gefur síðan til kynna breyttar áherslur þá leggjum við að sjálfsögðu við hlustir.
Nýr forseti, varaforseti og varnarmálaráðherra Bandaríkjanna hafa í liðinni viku gefið bandalagsríkjum sínum í Evrópu skýr skilaboð um að þau verði nú sjálf að axla meginábyrgð á því að tryggja öryggi og varnir í álfunni með virkari þátttöku og auknum framlögum til varnarmála og þau skilaboð hafa ráðamenn í Evrópu móttekið. Frá allsherjarinnrás Rússa fyrir þremur árum hefur uppbygging varna hjá ríkjum Atlantshafsbandalagsins verið í algerum forgangi ásamt því að styðja við varnarbaráttu Úkraínu. Allt miðar þetta að því að styrkja öryggi íbúa bandalagsríkja. Auðvitað myndu flest ríki, það er ekki nema sjálfsagt, kjósa að verja fjármunum í eitthvað annað en þau meta það þannig að það komi til með að verða þeim dýrkeyptara ef þessi lönd geta ekki tryggt eigið öryggi.
Þetta á líka við um okkur Íslendinga. Við höfum hækkað framlög okkar til varnarmála undanfarið. Við höfum stutt Úkraínu en við þurfum að gera meira til að tryggja eigið öryggi og leggja meira af mörkum til sameiginlegra varna. Við getum ekki skorast undan ábyrgð. Það hefur verið ljóst frá stofnun bandalagsins og sameiginlegur skilningur á því að Ísland hafi vitanlega sérstöðu vegna herleysis. Þrátt fyrir það hefur framlag okkar til sameiginlegra varna verið þýðingarmikið. Ísland veitir liðsafla bandalagsþjóða stuðning og tryggir að hér á landi séu tiltæk nauðsynleg geta, varnarmannvirki, kerfi, búnaður og þjónusta. Þetta minntust Finnar á í gær þegar við vorum í Keflavík og vorum að þakka þeim fyrir loftrýmisgæsluna þar sem þeir sögðu: Ísland er besta gestgjafaríkið sem við höfum farið til. Það eru meðmæli fyrir okkur og við eigum að gera meira í því.
Í samræmi við versnandi öryggishorfur í álfunni höfum við eins og aðrir bandamenn aukið framlög okkar til öryggis- og varnarmála jafnt og þétt á síðustu árum en við þurfum að gera meira. Svæðisbundnu varnarsamstarfi hefur auk þess vaxið fiskur um hrygg á síðustu árum, sérstaklega norræna varnarsamstarfinu. Þá hafa norðurslóðir fengið stóraukið vægi og með því samstarf bandalagsríkja á norðurslóðum um eftirlit og getu sem skiptir miklu máli í þessum heimshluta. Fyrir Ísland er þetta allt mikilvæg viðbót við varnarsamstarfið við Bandaríkin og samstarfið síðan innan NATO, en við þurfum að gera meira.
Það blasir við að ríki Evrópusambandsins muni nú bregðast við breyttum aðstæðum með því að leggja enn frekari áherslu á öryggissamstarf innan vébanda þess. Hagsmunir okkar eru að sjálfsögðu nátengdir hagsmunum grannríkja okkar innan ESB og því er mikilvægt að við höldum áfram að styrkja samráð og styrkja samstarf við sambandið á þessu sviði, alveg eins og bæði Noregur og Bretland hafa gert að undanförnu. Það er vert að undirstrika að aukin samvinna meðal Evrópuríkja þarf ekki að þýða að varnartengslin við Bandaríkin dvíni heldur er hún þvert á móti til þess fallin að auka sameiginlegt öryggi og styrkja þannig samstarfið enn frekar.
Við munum áfram vinna ötullega að því að efla öryggi og varnir Íslands í þéttu samstarfi við helstu bandalagsríki okkar og gera okkar ýtrasta til að reynast traustur bandamaður. Það kallar óhjákvæmilega á aukin framlög til öryggis- og varnarmála enda standa engin rök til þess að við getum skorast undan í þeim efnum, ekki frekar en önnur bandalagsríki. Við þurfum að gera meira og Alþingi mun áfram þurfa að taka veigamiklar ákvarðanir um til að mynda stuðning við Úkraínu og varnir Íslands líkt og aðrar vinaþjóðir okkar hafa gert í Evrópu að undanförnu.
Forseti. Þótt skilaboðin hafi verið mjög skýr í liðinni viku um að Evrópuríkin þurfi að axla meginábyrgð á því að tryggja öryggi álfunnar hafa yfirlýsingar nýrrar Bandaríkjastjórnar varðandi umleitanir um frið í Úkraínu komið verulega á óvart. Ríki Evrópu sem hafa staðið þétt að baki Úkraínu hafa talað einum rómi um að engar ákvarðanir sé hægt að taka um framtíð landsins án aðkomu Úkraínumanna sjálfra. Þetta hefur alveg verið skýrt í okkar málflutningi. Ekkert um Úkraínu án Úkraínu. Eðli málsins samkvæmt þurfa Evrópuríki líka að eiga sæti við borðið þegar semja á um málefni sem varðar öryggishagsmuni álfunnar. Það blasir við að án þátttöku Úkraínu og Evrópu allrar verður ekki hægt að tryggja varanlegan og réttlátan frið.
Við hér á Alþingi höfum verið staðföst í okkar stuðningi við Úkraínu og nú er mikilvægt að við tölum einni röddu um grundvallarstaðreyndir. Pútín ber ábyrgð á þessu stríði. Rússland er árásaraðilinn. Úkraínuforseti er lýðræðislega kjörinn þó að kosningum hafa verið frestað vegna stríðsins, eins og við höfum áður upplifað í sögunni, m.a. í seinni heimsstyrjöld hjá Bretum. Pútín er hins vegar ekki lýðræðislega kjörinn. Þessu má ekki snúa á hvolf. Það er ábyrgðarhluti allra stjórnmálamanna hins lýðræðislega heims að taka ekki þátt í upplýsingaóreiðu um þessar mikilvægu staðreyndir.
Hvers kyns samkomulag um framtíðarskipan mála í Úkraínu þarf að vera á grundvelli alþjóðalaga og án óréttmætra kvaða á það ríki sem ráðist var á með ólögmætum grimmilegum hætti og algerlega að tilefnislausu. Það er aldrei mikilvægara en á óvissutímum eins og við upplifum nú að standa með þeim grundvallargildum um virðingu við alþjóðalög, lýðræði, frelsi og mannréttindi sem við höfum sameinast um og verið málsvarar, sterkir málsvarar fyrir allt frá stofnun lýðveldisins. Ísland á að tala fyrir samstöðu og samstarfi lýðræðisríkja. Við eigum að geta tekist á um ólík sjónarmið en við eigum ekki að gera það á kostnað lýðræðisins sjálfs og mannréttinda með því að ýta undir úlfúð og ýta undir sundurlyndi fyrir pólitíska stundarhagsmuni.
Hér berum við stjórnmálamenn auðvitað mikla ábyrgð. Ég vona því að við sem hingað höfum verið kjörin af þjóðinni getum áfram verið sammála um mikilvægi samstöðunnar. Nú er ekki tíminn til þess að grafa undan sameinaðri Evrópu, allri Evrópu. Þá hættum við á að standa eftir ein á gríðarlega viðkvæmum tímapunkti. Þetta vil ég biðja þingheim að hafa í huga. Ég vil sömuleiðis ítreka það hér að við gleymum ekki sögunni. Leyfum ekki þeim sem halda á völdunum úti í heimi að endurskrifa söguna sér í hag.
Ísland mun áfram sýna Úkraínu óskoraðan stuðning á grundvelli stefnu Alþingis sem var samþykkt á síðasta ári. Við höfum beitt pólitísku vogarafli, veitt mannúðar- og efnahagsstuðning og lagt okkar af mörkum með varnartengdum stuðningi, m.a. við sprengjuleit og -eyðingu, þjálfun bráðatækna og framlögum í sjóði sem kaupa hergögn fyrir Úkraínu, rétt eins og Úkraínumenn hafa sjálfir óskað eftir. Þetta hlustum við á eins og okkar nánustu samstarfsríki og erum jafnframt reiðubúin að taka þátt í þeim framtíðarverkefnum sem Evrópuríkin munu vonandi sameinast um. Við sendum skýr skilaboð um að við stöndum með alþjóðalögum og rétti. Ef hægt er að beygja Úkraínumenn í duftið þá verður rekinn fleinn í hjarta Evrópu. Friður án réttlætis á sér litla sem enga framtíð.
Þessi ríkisstjórn er ekki feimin að tala um öryggis- og varnarmál. Þetta var rætt við stjórnarmyndunarborðið og birtist skýrt í stjórnarsáttmálanum. Í vor munum við leggja fram skýrslu um öryggis- og varnarmál og síðan leggja fram stefnu í öryggis- og varnarmálum í haust. Slík stefna þarf auðvitað að greina helstu áskoranir og hættur sem að okkur steðja til lengri og skemmri tíma. Hún þarf að draga fram helstu áherslur og markmið Íslands í fjölþjóðlegu varnarsamstarfi, hvar okkar hagsmunir liggja, og hvernig við viljum vinna að þeim í samstarfi við aðra. Þar er auðvitað aðildin að NATO og varnarsamningurinn við Bandaríkin hornsteinarnir. Síðast en ekki síst þarf að draga fram og varpa ljósi á nauðsynlega varnarviðbúnaðargetu sem þarf að vera til staðar á Íslandi og rýna fordómalaust í laga- og stofnanaumgjörð öryggis- og varnarmála. Við erum t.d. að styrkja netöryggis- og netvarnarþáttinn með því að færa netöryggisteymi stjórnvalda CERT-IS inn í utanríkisráðuneytið og Landhelgisgæslu að varnarmálum. Þar horfi ég sérstaklega til þess að tryggja að við vinnum saman sem órofa heild þegar á reynir og við nýtum þá getu og þekkingu sem við búum yfir með skilvirkum og hagkvæmum hætti.
Niðurstaðan er alltaf sú að við verðum að gera meira til að tryggja okkar eigið öryggi. Við skulum ekki gleyma því að meginmarkmið okkar allra er friður, en við tryggjum ekki frið án öryggis og trúverðugra varna.