156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

100. mál
[16:15]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta litla tappamál hefur svo sannarlega vakið upp umræðu sem hefur farið út um víðan völl, en ágæta umræðu að mér finnst. Meðal annars hafa verið rædd hér bara svona almennt sorpmál í víðu samhengi og það gerði hv. þingmaður einmitt ágætlega í sinni ræðu hér. Ég hjó eftir því, ef ég skildi hann rétt, að hann hefur áhuga á því að auka hlutfall flokkunar og hann nefndi flokkunina sérstaklega. Það er einmitt það sem mig langaði aðeins að velta upp hér og spyrja hv. þingmann, hvort mál eins og þetta og mörg önnur af sama toga, hvort meginspurningin sem þarf að svara sé ekki einmitt sú hver sé skilvirkasta leiðin til að farga sorpi. Ég er sjálf ekki sannfærð um að flokkun, eins og hv. þingmanni var tíðrætt um, sé skilvirkasta leiðin til að farga sorpi. Nú hefur miklum kostnaði verið velt á heimili og fyrirtæki einmitt í þessum tilgangi, til þess að auka flokkunina, án þess að það hafi verið lagt sérstakt mat á það hvaða árangur slík flokkun hefur í för með sér. Í þessu sambandi vil ég vísa til skýrslu Hagfræðistofnunar þar sem gerð var kostnaðar- og ábatagreining árið 2022 á tilteknum aðgerðum sem eru sagðar í þágu loftslagsaðgerða stjórnvalda. Í skýrslu Hagfræðistofnunar kemur einmitt fram ótvírætt að t.d. það bann sem hefur verið sett á urðun sé ein versta loftslagsaðgerðin sem gripið hefur verið til hér. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann hafi eitthvað fyrir sér í því að þessi flokkun sem honum var tíðrætt um sé endilega besti kosturinn til að farga rusli, þar með talið plasttöppunum títtnefndu.