156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

100. mál
[16:26]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þetta áhugaverða andsvar. Ég get upplýst hv. þingmann um það, af því að hann er að spyrja hvaða stefnu ég og Framsóknarflokkurinn höfum í þessu máli, að ég skil hv. þingmann bara fullkomlega að hafa ekki áttað sig á hver afstaða mín er í þessu máli þar sem ræða mín var ekki hálfnuð og niðurstöðukaflinn er í restina eins og er í öllum góðum skýrslum. Hann mun því fá að heyra afstöðu mína í síðari ræðu minni í þessu ágæta máli.

Það er hins vegar, virðulegur forseti, hálffurðulegt og svolítið sérstakt að standa hér í ræðupúlti eða sitja hér í þingsal og þurfa að hlusta á málflutning frá hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni, í Flokki fólksins, sem er að gagnrýna það að eitthvert ósamræmi sé í málflutningi þingmanna Framsóknarflokksins. (Gripið fram í: Í tappamálinu?) Já, í tappamálinu. Talandi um það að fyrsta mál ríkisstjórnarinnar, sem var bókun 35, í þessari samræmdu og samstæðu ríkisstjórn — það var ekki liðinn sólarhringur þegar ráðherra Flokks fólksins kom upp í þennan ræðustól og sagði að málið væri óþarft og gagnrýndi það. Það er nú sérstakt að heyra þetta koma úr þessari átt og ræðan ekki einu sinni búin þannig að hv. þingmaður veit ekki einu sinni hver niðurstaðan er.