156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

101. mál
[17:00]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra framsöguna. Það er auðvitað eins og alltaf þegar nýtingaráætlun, sem sagt ramminn, er rædd hér í þessum sal að þá er mikið undir og sitt sýnist hverjum eins og þar stendur. Mér þykir áhugavert að sjá, og kannski ekki bara með jákvæðum formerkjum, að hérna sé Norðurlandið að fara töluvert aftur á bak hvað virkjunarkosti varðar með þeirri ákvörðun sem hér er lagt til að verði tekin, að Héraðsvötnin og allir þeir kostir sem þar eru undir verði færðir í verndarflokk. Vissulega koma fram takmarkaðar upplýsingar í málinu eins og það liggur fyrir hvað þetta varðar en mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra hvaða áhrif þetta hafi á heildarmynd orkuvinnslu á Norðurlandi og hvort aðgerðir hvað flutningsgetu og uppbyggingu flutningsnets varðar muni að einhverju leyti mæta þeirri takmörkuðu framleiðslu sem fram undan er, ef fram heldur sem horfir á þessu svæði, verði þessi tillaga samþykkt eins og hún liggur fyrir.