156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

101. mál
[17:07]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir hans framsögu á þessu máli og fagna því að hér sé verið að setja vissa kosti í nýtingarflokk. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um vinnuna hjá verkefnastjórninni í tengslum við þessa rammaáætlun og kostina og flokkunina. Hæstv. ráðherra fór yfir hvað væri verið að horfa til vegna friðunar á Héraðsvötnum, þá þætti. Ég velti því fyrir mér hvort, í ljósi orkuöryggis og þess að við munum þurfa að afla frekari orku til framtíðar, hæstv. ráðherra telji tilefni til að bæta flokkum við í vinnu verkefnisstjórnarinnar þegar verið er að flokka orkukosti í nýtingar-, bið- og verndarflokk og hvort það þurfi ekki að horfa til orkuöryggis t.d. og kaldra svæða og hvort það þurfi ekki að dreifa orkukostunum (Forseti hringir.) betur um landið. Við sjáum bara jarðhræringarnar á Reykjanesskaga og annað og hvar helstu virkjanirnar okkar er staðsettar á landinu. Það þarf ekki mikið, það þarf bara flóð í Tungnaá til þess að allt fari hér í voða.