156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

101. mál
[17:08]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þetta andsvar. Þetta er mjög mikilvæg ábending og ég hef hugsað þetta líka, að það sé full ástæða til að horfa sérstaklega til raforkuöryggis í vinnu faghópa verkefnisstjórnar rammaáætlunar og uppfæra jafnvel reglugerð um rammaáætlun með þeim hætti að það sé skýrara að faghóparnir séu m.a. að horfa til atriða eins og raforkuöryggis en líka t.d. kolefnishlutleysis og þátta er varða orkuskipti. Ég held að þetta sé skynsamlega hugsað og ég tek undir þetta. Annars vil ég nefna, af því að hv. þingmaður nefndi Héraðsvötnin, að það er auðvitað þannig, eins og ég fór yfir áðan, að verkefnisstjórnin í rauninni lét það ráða við sína yfirferð á þessum tiltekna virkjunarkosti að það voru ákveðin atriði sem umhverfis- og samgöngunefnd á síðasta kjörtímabili bað um að yrðu skoðuð að nýju og það var þá þessi grundvallarspurning um hvort verndargildi Héraðsvatnanna hefði verið ofmetið í fyrri yfirferð. Verkefnisstjórnin kemst að þeirri niðurstöðu að svo sé ekki (Forseti hringir.) og þess vegna er þetta lagt fram með þessum hætti, þ. e. lagt til að Héraðsvötnunum verði aftur raðað í verndarflokk.