156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

101. mál
[17:11]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég held að það sé full ástæða til að fara varlega bæði þegar ákveðið er að setja kost í nýtingarflokk og þegar ákveðið er að setja kost í verndarflokk af því að lög um rammaáætlun gera ráð fyrir að um leið og kostur er kominn í verndarflokk þá sé strax byrjað að vinna að friðlýsingu og, eins og hv. þingmaður nefnir, jafnvel heilu vatnasviðanna. Biðflokkur er bara hlutlaus flokkur og það er ekkert óeðlilegt að margir kostir séu í biðflokki, m.a. þegar það ríkir óvissa um stöðu orkumála í landinu. Þannig að ég tek bara undir það hjá hv. þingmanni að það verður að gæta ákveðinnar varfærni þegar kemur að því að raða kostum. Það að raða kosti í nýtingarflokk þýðir að það fer af stað ferli sem getur endað með óafturkræfum ákvörðunum um nýtingu viðkomandi kosts. En svo getur það líka bundið hendur okkar að verulegu leyti til framtíðar að setja kosti í verndarflokk, þannig að þarna þarf bara að sýna ábyrgð og fara varlega.