156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

101. mál
[17:12]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka kærlega umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fyrir framsöguna og jafnframt þakka honum fyrir að koma fram með þetta mál og setja það framarlega á sinn lista. Jafnframt vil ég þakka fyrrverandi umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni, fyrir dugnað sinn í ráðuneytinu á sínum tíma. Nú er staðan þannig að í verndarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar falla virkjunarkostir sem ekki er talið rétt að ráðast í og landsvæði sem ástæða er talin til að friðlýsa gagnvart orkuvinnslu. Þetta er í ákvæðum 6. gr. laga um verndar og orkunýtingaráætlun, nr. 48/2011. Nú vil ég spyrja ráðherrann hvort það beri að skilja ákvæði laganna með þeim hætti að það beri að friðlýsa gegn orkuvinnslu alla orkukosti sem Alþingi samþykkir í verndarflokk. Ef svo er, hvernig er friðlýsingu háttað þegar um er að ræða vindorkukosti sem flokkast með áðurnefndum hætti?