156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

101. mál
[17:14]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sitt innlegg. Hv. þingmaður spyr hvort það sé skilningur ráðherra að eftir að kostir hafa verið flokkaðir í verndarflokk rammaáætlunar þá beri að vinna að friðlýsingu þeirra. Já, það er sannarlega minn skilningur. Í framhaldinu spyr hv. þingmaður hvernig því sé háttað þegar kemur að vindorkukostum. Ég á kannski aðeins erfiðara með að svara því, því ef mér skjátlast ekki þá hefur það enn sem komið er ekki gerst að það séu lagðir fram vindorkukostir og samþykktir í verndarflokk rammaáætlunar. Þetta er eitthvað sem ég þyrfti að athuga, hvernig framkvæmdin er nákvæmlega, hvort hún sé mjög frábrugðin því þegar kemur að friðlýsingu virkjunarkosta sem hafa með vatnsafl og jarðvarma að gera. Þetta er bara ágætisspurning sem ég get athugað og umhverfis- og samgöngunefnd (Forseti hringir.) getur líka fengið nánari upplýsingar um úr mínu ráðuneyti ef áhugi er á.