156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

101. mál
[17:18]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að leggja þetta mál fram og fyrir ágætisframsögu. Ég tel mikilvægt að við förum á dýptina í orkumálin og ég sakna þess og mér finnst miður að hæstv. ráðherra hafi tekið af þingmálaskrá bæði umræðu um skýrslu um raforkumálefni, sem er lögbundið að koma með á nokkurra ára fresti, og sömuleiðis varðandi flutningskerfið. Málefnið er þess eðlis að í fyrsta lagi er náttúrlega lögbundið að koma fram með það og ég veit að fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, Ólafur Adolfsson, hefur tekið þetta upp í umhverfis- og samgöngunefnd. Það er ekki bara lögbundið að koma fram með þetta heldur er líka svo mikilvægt að við ræðum þessi mál á dýptina. Alveg eðlilega er þessi skýrsla ekki eitthvað sem hæstv. ráðherra lét gera og hann getur haft allar skoðanir á því en það breytir því ekki að við erum búin að vera í kyrrstöðu og stöðnun í áratugi þegar kemur að orkumálum. Sem betur fer rufum við hana á síðasta kjörtímabili en það er enn þá þannig, virðulegi forseti, að umræðan, við getum sagt að hún mætti verða dýpri

Orkumál eru í eðli sínu langtímaverkefni. Þetta er þjóðaröryggismál og því fleiri og þá sérstaklega auðvitað hv. þingmenn sem eru inni í þessum málum, því meiri líkur eru á því að niðurstaðan verði góð. Ég er mjög ánægður að heyra hjá hæstv. ráðherra að hann er með þá túlkun, sem ég hef alltaf verið á, að ramminn sé tæki. Hann átti að skapa sátt en gerði það svo sannarlega ekki en svo veit ég heldur ekki hvort við getum náð sátt um þessi málefni. Ramminn kom að vísu eftir miklar deilur og menn töldu að hér væri tæki sem gæti nýst betur. En það er túlkun hæstv. ráðherra, og ég er sammála honum, að það sé síðan þingið sem tekur afstöðu til málsins og það sé þingið sem ákveður hver niðurstaðan er, eins og var gert síðast þegar ramminn var samþykktur. Það var fyrsta málið sem ég flutti og því miður, og ég held að hafi verið á misskilningi byggt, en stjórnarflokkarnir gagnrýndu mjög að það voru gerðar breytingar á tillögum verkefnisstjórnar. En það er fullkomlega eðlilegt að gera það. Það er miklu eðlilegra að gera það heldur en — þó að það sé heimilt og ég er ánægður að hæstv. ráðherra fór ekki þá leið eins og hæstv. ráðherra Svandís Svavarsdóttir gerði á sínum tíma í ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna. Í kjölfarið kom frumvarp til laga frá þingflokki Sjálfstæðismanna, og fyrsti flutningsmaður var formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, þar sem er rakið nákvæmlega það sem frumvarpið gengur út á, að ráðherra sé skylt að koma fram með málið óbreytt, þ.e. niðurstöðu verkefnisstjórnar. Ástæðan er sú að í tíð þeirrar ríkisstjórnar þá voru teknir út í rauninni flestir bestu virkjunarkostirnir og síðan afgreiddi þingið þetta óbreytt.

Ég leyfi mér, virðulegi forseti, að vitna í greinargerðina, á bls. 5 í því máli sem ég er hér að vísa til, sem er á þskj. 3, 3. mál á 141. löggjafarþingi, þá segir hér:

„Þar að auki voru gerðar þær breytingar frá fyrri drögum að tillögunni að sex virkjunarkostir, Urriðafossvirkjun, Holtavirkjun, Hvammsvirkjun, Skrokkölduvirkjun, Hágönguvirkjun 1 og Hágönguvirkjun 2, voru fluttir úr nýtingarflokki í biðflokk.“

Það var í algeru ósamræmi við niðurstöðu verkefnisstjórnar. Í kjölfar þessa þá sagði hv. þm. Kristján Möller að það væri búið að eyðileggja rammann. En fyrir þá sem ekki þekkja til þá var Kristján Möller þingmaður Samfylkingarinnar.

Ég tel mjög mikilvægt, virðulegi forseti, að hv. nefnd fari vel yfir þetta en fari sömuleiðis af ýmsum ástæðum varlega í að setja hluti í verndarflokk. Ég er ekki sammála hæstv. ráðherra að það sé skylda og það gerði ég ekki í minni ráðherratíð, að væri eitthvað í verndarflokki yrði það sjálfkrafa friðlýst. Það er sannarlega heimilt … (Gripið fram í.) Ja, það er bara mismunandi túlkun á því. Ég alla vega gerði það ekki og friðlýsti ekkert á grundvelli þessara laga.

Þó að það hafi verið auglýst hér verndarsvæði Búlandsvirkjunar þá er ágætlega tekið fram í þingsályktunartillögunni, og ég hvet hv. þingmenn til að skoða það, hvað menn ætla að vernda fyrir orkunýtingu þar. Þetta er bara sú aðferð sem hefur verið notuð. Þarna eru fjöll og firnindi. Sveinstindur er þarna inni. Af hverju í ósköpunum er verið að vernda Sveinstind fyrir orkuvinnslu? Er einhver sem getur virkjað á Sveinstindi? Ég fékk aldrei almennileg svör við því en ég fékk mjög hörð viðbrögð frá nágrönnum mínum í Skaftártungu þegar þetta kom. Ég skal viðurkenna að ég hélt að þetta væri með öðrum hætti. Það er þarna líka vatnasvið tekið sem enginn hefur áhuga á og ekkert sem kallar á vernd á grundvelli þessara laga. Þetta er eitthvað sem við þurfum að taka til endurskoðunar.

Lykilatriðið er þetta: Okkur liggur hins vegar á að setja þarna ákveðna virkjunarkosti í nýtingarflokk og sérstaklega þegar kemur að Þjórsársvæðinu. En líka er rétt sem hér kom fram hjá hv. þm. Ingibjörgu Isaksen, og mér fannst hæstv. ráðherra taka undir það, að við verðum að líta til þjóðaröryggis. Það borgar sig frekar fyrir okkur að setja hlutina þá bara í biðflokk, skoða málin betur.

Auðvitað er það þannig að það er fernt sem þarf að gera til þess að virkja. Þú þarft leyfið. Það er þingið og þingið hefur ekki staðið sig sem skyldi. Ég vona að það breytist. Hæstv. ráðherra er með mun betri þingheim heldur en sá sem hér stóð þegar kemur að þessu. Svo númer tvö verða orkufyrirtæki að fara í þetta. Það olli mér vonbrigðum þegar við kláruðum rammann á sínum tíma hvað fyrirtækin fóru hægt í að framkvæma og virkja. Reyndar var það þannig að eitt fyrirtækið, sem er að vísu búið að kúvenda afstöðu sinni, Orkuveita Reykjavíkur, var með þá yfirlýstu stefnu að það væri ekki réttlætanlegt að virkja meira þrátt fyrir að þeir bæðu um að settir væru kostir inn í rammann. Leyfisveitingaferlið þarf að vera skilvirkt. Það hefur ekki verið skilvirkt en sem betur fer erum við búin að sameina stofnanir sem tóku til starfa núna um áramótin. Ég get alveg sagt hæstv. ráðherra að það er mikil breyting. En betur má ef duga skal og ég treysti því að hæstv. ráðherra gangi áfram í því, eins og hann hefur sagt, að hann ætli að halda áfram einföldun þar. Svo númer fjögur þá þurfa sveitarfélögin að spila með. Núna hafa sveitarfélögin 14 ár, þau geta tafið virkjunarkosti sem eru í nýtingarflokki í 14 ár.

Þær tillögur sem hæstv. ráðherra vísaði til, sem ég þarf nú ekki alveg vera sammála honum um að séu ekki efnismiklar, eru í þeirri skýrslu sem ég hvet alla þingmenn til að kynna sér, Endurskoðun á lögum um rammaáætlun. Hilmar Gunnlaugsson stýrði þessari vinnu ásamt Björt Ólafsdóttur og Kolbeini Óttarssyni Proppé. Þar er gert ráð fyrir að ferlið verði tímasett og vari ekki lengur en í 24 mánuði, sem má alla vega ekki verða lengra. Ef það er hægt að stytta það enn frekar þá væri hægt ganga í það en það liggur nokkuð á.

Ég sé að það er á þingmálaskránni líka annar rammi sem er tilbúinn, sem er mjög mikilvægt, vegna þess að á meðan við erum að vinna í því að einfalda og gera hlutina skilvirkari og slíkt þá megum við ekki stoppa. Það er mikilvægt að þingið taki þessa þingsályktunartillögu, þennan ramma, og afgreiði hana og taki þá út þá hluti sem er mjög mikilvægt að mínu áliti að skoða betur. Ég held að það verði aldrei friður — enda er sú leið sem hefur verið farin þegar kemur að friðlýsingum og varðandi verndarsvæðin einfaldlega bara ekki rökrétt og hún hefur valdið miklum skaða.

Það er nú bara þannig að það er fólk í landinu og þegar fólki misbýður — ég nefni þetta svæði, eins og á Suðurlandi í kringum Búlandsvirkjun, sem var alveg ríkur vilji fyrir og ég studdi það að Búlandsvirkjun yrði ekki að veruleika, en þetta verndarsvæði þarna fyrir orkunýtingu er bara ekki rökrétt. Venjulegt fólk, það spyr bara: Bíddu, hvers konar rugl er þetta? Ég styð það að við förum ekki í Búlandsvirkjun en af hverju er verið að vernda fyrir orkuvinnslu eitthvað þar sem aldrei verður orkuvinnsla? Hvað þýðir það? Liggur fiskur undir steini?

Ég mun koma hér aftur, virðulegi forseti, því að þetta er allt of stuttur ræðutími. Ég vonast til þess að bæði núna í dag og aftur þá getum við rætt þessi mál á dýptina og að við getum klárað að setja í nýtingarflokk hluti sem er mikilvægt að setja þar. Og sömuleiðis, það sem við þurfum að skoða betur (Forseti hringir.) þar skulum við ekki tefja málið heldur setja hlutina í biðflokk og fara betur yfir þá seinna.