breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Það segir í lögunum:
„Stjórnvöld skulu þegar Alþingi hefur samþykkt verndar- og orkunýtingaráætlun hefja undirbúning að friðlýsingu landsvæða sem ástæða þykir til að friðlýsa gagnvart orkuvinnslu samkvæmt verndarflokki áætlunarinnar.“
Ég hef skilið þetta svo að orðin „sem ástæða þykir til að friðlýsa“ gefi til kynna að ekki sé endilega ástæða til að friðlýsa allt sem lendir í vernd. Við skulum átta okkur líka á því, virðulegi forseti, að ef það er gert þá ber ríkið líka skaðabótaskyldu gagnvart landeigendum sem vilja setja þau í orkuvinnslu vegna þess að þar er verið að ganga á eignarréttinn. Það er bara mismunandi skoðun. Ég friðlýsti ekkert á grunni þessara laga.
Ég held að sumt hafi skaðað náttúruvernd mjög mikið. Ég held t.d. að þessar afmarkanir hafi skaðað náttúruverndina. Ég held reyndar að framganga ýmissa samtaka sem kenna sig við náttúruvernd hafi skaðað mjög náttúruvernd. Mér brá mjög mikið þegar ég kom í þetta embætti, vegna þess að ég er náttúruverndarsinni, hef alltaf verið það og hef fundið góðan samhljóm meðal almennings hvað það varðar, að þá var það orðið skammaryrði út af því hvernig sumir aðilar hafa gengið fram. Það er ótrúlegt þegar við erum að sjá núna þessa baráttu sem ýmis náttúruverndarsamtök eru með, að þau eru hætt að reyna að kalla eftir stuðningi almennings heldur fer aðalorkan í það að fara að vinna málin fyrir dómstólum. Þá erum við komin eitthvað langt frá því þegar menn voru hér að berjast fyrir því að koma í veg fyrir að Gullfoss yrði virkjaður o.s.frv., sem við þökkum mikið fyrir.
Ég er ánægður að heyra að hæstv. ráðherra vilji ræða raforkuskýrsluna. Ég held að við ættum að gefa okkur góðan tíma í það. Auðvitað hefði ég viljað fá hinar skýrslurnar fyrr en það er hins vegar gott að hæstv. ráðherra ætli að koma hérna vonandi fljótlega í haust.