156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

101. mál
[17:33]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir ræðuna. Mig langar til að spyrja sérstaklega um eitt atriði, sem ég veit að hv. þingmaður þekkir vel sem fyrrverandi ráðherra málaflokksins, og það snýr að samfélagslega matinu sem mér sýnist á öllum gögnum að hafi ekki verið unnið með forsvaranlegum hætti býsna lengi í vinnu stýrihópa rammaáætlunar. Auðvitað er uppleggið í regluverkinu þeirrar gerðar að samfélagslegu áhrifin skulu metin með ítarlegum og fullnægjandi hætti. Ég gerði miklar athugasemdir við þetta í tíð fyrri ríkisstjórnar, á fyrra kjörtímabili, að svona holt og bolt þá hafi vantað upp á þetta mat. Ef menn eru að leggja verndarmatið á vogarskálarnar með þeim rökum sem þar koma fram þá verða menn auðvitað að leggja samfélagslega matið á vogarskálarnar til að fá einhverja heildstæða mynd gagnvart því að við þingmenn getum glöggvað okkur þannig á málunum að við getum raunverulega tekið afstöðu til þess hvor áhrifin hafi meiri vigt en hin. Þannig að mig langar að spyrja hv. þingmann, og kannski svolítið ósanngjarnt, sem fyrrverandi ráðherra málaflokksins hvernig hann sjái fyrir sér að samfélagslegu áhrifin verði aftur dregin um borð, ef svo má segja, hvað varðar þetta heildstæða mat sem þarf að eiga sér stað.