breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þetta er ekkert ósanngjarnt. Því meira sem hv. þingmaður spyr mig út í málið, því betra. Ég tel virkilega, og ég hef einhverja reynslu af málaflokknum, að mjög mikið af deilunum sé til komið út af misskilningi, vegna þess að við ræðum þessi mál ekki nógu mikið. Það er ekkert okkar fætt þannig að við þekkjum alla hluti. Þegar við ræðum hluti eins og þessa þá upplýsist ýmislegt og það kemur oft í ljós að við erum bara ekki jafn ósammála og fólk ætlar.
Þessi rammi er til kominn og var forgangsmál vegna þess að þingið sagði: Við viljum fá svör við þessum spurningum. Verkefnisstjórnin hefur aldrei unnið jafn hratt og núna. Þess vegna eru þessir þrír rammar í rauninni í viðbót tilbúnir þó svo að við séum nýbúin að klára þann ramma sem við kláruðum í upphafi síðasta kjörtímabils. Það var bara ákveðnum spurningum beint til verkefnisstjórnarinnar af þinginu. Mér fannst algjörlega hárrétt að menn myndu virða þingið, niðurstöðu þingsins, spurningar þingsins og koma með svör við spurningunum.
Síðan geta menn spurt sig hvort þetta hafi verið alveg réttu spurningarnar. Þingið hefði kannski t.d. átt að spyrja: Þurfum við ekki að líta til þess að hafa ekki öll eggin í sömu körfunni? Af því að ef við skoðum orkuvinnslu á Íslandi þá erum við með þetta í rauninni á Þjórsársvæðinu, við erum með þetta á Reykjanesi, Kárahnjúkum og aðeins í Kröflu. Þetta eru ekki mörg svæði þar sem við erum með meginhlutann af orkuvinnslunni og við erum búin að læra að það gengur á ýmsu, náttúran lætur illa að stjórn, og þegar kemur að okkar orkumálum þá verðum við líka að líta til þess að hafa ekki öll eggin í sömu körfunni.
Síðan var í vinnunni alltaf lögð áhersla á að skoða þessi samfélagslegu áhrif. En þetta eru hins vegar ekki vísindi. Þetta er til að hjálpa okkur þingmönnum að taka ákvörðun. Það er ekki enn þá komið það fyrirkomulag (Forseti hringir.) að við setjum þetta í einhverja vinnu, hvort það heitir verkefnisstjórn eða fagráð eða annað slíkt, og svo komi bara eitthvað sem allir eru sammála um. Það er bara ekki þannig og það er ekki hægt að ætlast til þess. En þetta eru góðar upplýsingar.
(Forseti (HildS): Forseti bendir hv. þingmönnum á að hinkra eftir kynningu forseta í ræðustól.)