156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

101. mál
[17:38]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir og ég er alveg meðvitaður um það hvernig þessi tiltekni rammi er til kominn. Það er vegna spurninga þingsins. En það breytir því ekki að mér hafa fundist samfélagslegu áhrifin sem matsþáttur í rammaáætlunarferlinu sem slíku, bara holt og bolt á litið, hafa borið ansi skarðan hlut frá borði. Og það hefur verið staðan mjög lengi. Þannig að ég velti fyrir mér, einmitt með vísan í að þessi tilteknu viðbrögð eru til komin með þeim hætti sem raunin er — það breytir því ekki að bæði hvað þessi svör varðar og öll hin sem við eigum eftir að fá fram inn í þingið og heildstæða rammaáætlun eða hvernig sem hæstv. ráðherra kýs að skipta verkefninu upp — þá er ég fyrst og fremst að velta fyrir mér þessu mati á samfélagslegum áhrifum sem er alger lykilþáttur. Auðvitað er fæst af þessu raunvísindi, þ.e. matið á umhverfisþáttum annars vegar og samfélagslegum þáttum hins vegar, það eru ekki raunvísindi. En á meðan svona mikill þungi er lagður í umhverfislega matið finnst mér að við verðum að ýta undir það að samfélagslega matið sé framkvæmt með forsvaranlegum hætti. Og það er í rauninni það sem ég var að spyrja hv. þingmann út í og ætlaði mér að reyna að átta mig á hvernig fyrrverandi ráðherra málaflokksins sæi fyrir sér að haganlegast væri fyrir okkur hér í þinginu að lyfta þeim matsþætti til að auðvelda okkur að glöggva okkur á heildarmyndinni og komast þar með að skynsamlegri niðurstöðu.