156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

101. mál
[17:40]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég biðst velvirðingar á því að hafa hlaupið of hratt inn í pontuna. Ég er bara svo spenntur að taka þátt í þessari umræðu. Maður gleymir sér aðeins.

Ég get alveg verið sammála hv. þm. Bergþóri Ólasyni um það að samfélagslegi þátturinn — og það lögðum við áherslu á, þó að það hafi ekki verið í þessu máli, í allri vinnu verkefnisstjórnarinnar, að það sé farið eins vel yfir það og kostur er. Ég segi samt sem áður: Þetta eru ekki hin fullkomna vísindi, þetta er til að hjálpa okkur að glöggva okkur á stöðu mála. Ég held að mistökin sem höfum gert, ein af þeim — af því að ef við hættum með rammann, sem er alveg ekkert mál, þá þurfum við að hafa eitthvað betra í staðinn.

En ramminn er ekki þannig, og það er rangt að leggja það upp þannig, að þegar verkefnisstjórnin kemst að niðurstöðu þá sé það greypt í stein. Við erum bara með alls konar skoðanir. Sumir segja: Það getur vel verið að samfélagsþátturinn skori bara mjög hátt en ég er samt á móti þessu. Aðrir segja: Heyrðu, það getur vel verið að samfélagslegi þátturinn spili ekkert svo ofsalega stórt miðað við þessa útleggingu þarna en ég er samt sem áður fylgjandi því að fara þessa leið, þ.e. að setja hluti í nýtingarflokk ef við erum að hugsa það þannig. Til dæmis með Búrfellslund, hann var í biðflokki en menn ákváðu að setja hann í nýtingarflokk af því að menn gerðu bara ekki mikið með þau rök. Og ég var sammála þinginu og greiddi glaður atkvæði með því að það hefði mikil áhrif á ferðaþjónustu að setja upp Búrfellslund. Ég þekki það svæði ágætlega og ég er bara fullkomlega ósammála þeirri niðurstöðu, svo maður taki bara eitt dæmi.

Það sem ég er bara að segja er að ég er alveg sammála hv. þingmanni. En þetta er fyrst og fremst tæki okkar; að fá upplýsingar, setjast niður og meta þær. Síðan geta menn líka tekið aðra þætti. Eitt af því sem menn þurfa að líta til núna augljóslega, og hefði auðvitað alltaf þurft að gera — við Íslendingar munum ekki hlutina nema, ekkert alltaf — við verðum að líta til þjóðaröryggis og við getum ekki haft öll egg í sömu körfunni.

En svo þurfum við líka að gæta jafnvægis (Forseti hringir.) vegna þess að ef við göngum fram af okkar þjóð þá er hætt við að hlutirnir verði eins og þeir voru í upphafi síðasta kjörtímabils, sem er allt öðruvísi heldur en nú. Það er betra að við séum með jafnvægi í þessum málum.