breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans góðu ræðu, hann fór vel yfir málið. Varðandi rammaáætlun og ferlið sem hann kom inn á og hugsanlega endurskoðun á því ferli þá höfum við fengið kynningu í Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA, þegar við höfum farið í Evrópusambandið, á verkefni sem heitir REPowerEU, sem gengur út á það að einfalda ferla í tengslum við virkjunarkosti og fleira og framkvæmdir. Þar er m.a. verið að leggja til að í stað þess að færa rök fyrir því af hverju á ekki að virkja á tilteknu svæði þá þarf að færa rök fyrir því í rauninni akkúrat öfugt. Virkjunin gengur fyrir og ef það koma einhver rök fyrir því af hverju á ekki að virkja þurfa þau að vera miklu skýrari en þau eru í dag.
Mig langar að spyrja hv. þingmann: Hvernig finnst honum þetta fyrirkomulag? Vernd og nýting geta farið saman, vissulega, og við þurfum að stíga varlega til jarðar þegar kemur að þessum málum og vanda okkur. En telur hv. þingmaður verndina hærra metna þegar litið er til orkuöryggis í dag í rammaáætlunarferlinu heldur en mikilvægi þess að afla orku varðandi samfélagið og þróun samfélags til framtíðar og hvort það þurfi að breyta þessu og þá hvernig?