breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans svar og þetta er alveg hárrétt. Aðrar þjóðir eru einmitt að leita logandi ljósi að grænni orku til þess bæði að efla sitt samfélag og fara í þessi grænu orkuskipti sem eru mjög mikilvæg og er markmið okkar allra, held ég. Komandi einmitt að friðun og friðun heilu vatnasviðanna þá erum við með því að friða heilu vatnasviðin að útiloka kosti, mögulega kosti til framtíðar. Það er verið að útiloka svæði þar sem væri möguleiki á hagkvæmum kostum sem gætu komið til greina til framtíðar. Í ljósi þess að aðrar þjóðir eru mögulega líka að vinda ofan af friðunum hjá sér, telur hv. þingmaður það skoðunar virði að meta þá kosti sem hafa farið núna í vernd? Þarf að vinda ofan af einhvers konar vernd sem hefur verið? Nú er t.d. vatnsaflið okkar ekki óþrjótandi auðlind. Ef við sjáum hvað er búið að friða á Íslandi þá eru það helst árnar okkar og ég tala ekki um ef þetta mál sem hér er til umfjöllunar verður að veruleika óbreytt. Hvað sér hv. þingmaður fyrir sér varðandi þetta? Myndi hann vilja endurskoða þetta ferli og hvað á að friða mikið og draga til baka?