breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir ræðuna. Mig langar til að koma inn á nokkur atriði sem bar á góma í ræðu þingmannsins. Kannski fyrst að nefna að það er misskilningur með biðflokkinn. Hann er ekki geymsla orkukosta heldur rata þangað einvörðungu kostir þar sem skortur er á upplýsingum, það vantar upplýsingar til að koma kostinum annaðhvort í vernd eða í nýtingu. Að öðru leyti er þessi kostur ekki nýttur. Ég verð nú eiginlega að nefna að það sem við erum að fjalla um hérna í dag er í rauninni kannski að einhverju leyti mín smíði því ég er í verkefnisstjórn um rammaáætlun, 5. áfanga, sem er ráðgefandi fyrir ráðherrann í þessu tilfelli þannig að málið er mér dálítið skylt. Ég vil bara lýsa því að mér finnst að þetta starf verkefnisstjórnar sé stundum misskilið. Það er auðvitað þannig að það er ekki verið að taka ákvörðunarvaldið af þingmönnum. Þingmenn geta auðvitað ákveðið að breyta þessum fyrirliggjandi tillögum. Það er ekkert sem bannar það. Það sem verkefnisstjórn gerir er bara að bjóða mönnum upp á upplýsta ákvarðanatöku þannig að menn viti hvað liggur til grundvallar. Það er auðvitað þannig að verndin, sjálf verndin, getur kannski líka verið í rauninni verðmætasti kosturinn. Það má ekki gleyma því.