breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Ég þakka þingmanninum fyrir svörin. Mig langar að nefna að þingmaðurinn á greinilega eftir að læra það að ég sem aldrei um jafntefli. [Hlátur í þingsal.] Bara til að lýsa því þá er það þannig að ef tillaga færist yfir í bið, eins og gerðist t.d. með þann kost sem við erum að ræða núna, þá tekur verkefnisstjórnin kostinn til umfjöllunar og skilar þá inn í næsta ramma. Það sem ég held að hafi kannski verið vandamál þingmanna hingað til er að þessir kostir voru allt of margir á hverjum tímapunkti. Það var verið að ræða kannski 20, 30 kosti. Ég held að það hafi kannski gert að verkum að það var erfitt fyrir þingið að koma sér saman um niðurstöðu. Ég hef alla vega þá tilfinningu eftir nokkra daga á þinginu að hér viðgangist þónokkuð hrossakaup og þeim mun fleiri sem kostirnir eru þeim mun líflegri verða þau.
Mig langar að nefna með Norðmenn að ég held að þeir hafi bara ákveðið það að þeir væru búnir að taka þá kosti sem þeir ætluðu sér að vernda og þá var þeirra vinnu bara lokið. Kannski hefðum við átt að taka það upp verklag hjá okkur að byrja á að velja þá kosti sem við ætlum absolút að vernda og vinna svo með aðra kosti.