156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

101. mál
[18:18]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það kemur mér mjög á óvart að heyra þessa nálgun Framsóknarflokksins á þetta mál, að það sé í rauninni kvartað undan því hér að ríkisstjórnin sé að koma með rammaáætlun inn í þingið og stefni að aukinni orkuframleiðslu í landinu. Það kemur mér mjög á óvart að það sé sú afstaða sem heyrist frá Framsóknarflokknum, að það megi helst ekki mæla fyrir um aukna orkuframleiðslu fyrr en búið er að festa það í lög að orkan renni til tiltekinna verkefna, eins og mér heyrist vera það sem það sem hv. þingmaður vill að sé gert. Og ég get bara svarað því að það kemur ekki til greina að festa það í lög að öll orkuframleiðsla á Íslandi fari í rafbílavæðingu eða eitthvað slíkt. Það kemur ekki til greina.

Það sem við erum að horfa á hérna er aukin orkuframleiðsla, ekki bara vegna orkuskipta, ekki bara vegna loftslagsskuldbindinga Íslands heldur líka til verðmætasköpunar og til atvinnuuppbyggingar um allt land. Við erum auðvitað með markaðskerfi þegar kemur að raforku. Raforka er markaðsvara á Íslandi. Þess vegna skiptir máli hvaða hvatar eru notaðir einmitt til að ýta undir orkuskipti. Það er bara efni í allt annað þingmál heldur en við erum að ræða hér. Við erum að ræða hér um rammaáætlun. Við erum að ræða um það hvort tilteknir virkjunarkostir séu æskilegir eða ekki, hvort ákveðin svæði séu vel til þess fallin að fara í nýtingarflokk, verndarflokk eða biðflokk. Ég er satt best að segja mjög hissa á því ef þetta er í alvörunni afstaða Framsóknarflokksins í þessu máli, að það sé bara alveg voðalegt að koma með þetta inn í þingið meðan einhver önnur lagafrumvörp sem hv. þingmaður hefur áhuga á að verði samþykkt eru ekki komin fram.

Ég get líka glatt hv. þingmann með því að það er að koma inn í þingið frumvarp um raforkuöryggi sem lýtur að vernd almennra notenda. Þetta er flókin lagasetning. Við köstum ekki slíku fram úr erminni á örfáum dögum (Forseti hringir.) eins og maður hefði kannski viljað. Við ætlum að gera það í tveimur skrefum og fyrra skrefið er að koma inn í þingið á næstunni. En þetta er hins vegar forgangsmál, að styðja við aukna raforkuframleiðslu í landinu, m.a. með þessari rammaáætlun sem ég mælti hér fyrir (Forseti hringir.) og ég vonast eftir stuðningi og góðri umfjöllun um það í umhverfis- og samgöngunefnd og frábið mér svona málflutning, (Forseti hringir.) að við séum að kasta ryki í augu fólks. Hvað? Ég bara — já, gott og blessað.

(Forseti (HildS): Forseti beinir því til hv. þingmanna og hæstv. ráðherra að virða tímamörk sem í þessum lið eru 2 mínútur en ekki 2 mínútur og 38 sekúndur.)