breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Það er þannig, eins og hæstv. ráðherra þekkir, að auðvitað getur aukin orkuframleiðsla í öllum tilvikum aukið verðmætasköpun. Það sem Framsókn hefur talað fyrir er einmitt að við séum að skapa hvata til að sú verðmætasköpun geti orðið um allt land og í takti við þau markmið sem stjórnvöld hafa sett sér á hverjum tíma. Og það eru mörg tækifæri. Það eru tækifæri þegar kemur að landeldi um allt land, það eru tækifæri þegar kemur að því að styrkja raforkukerfi í samhengi við orkuvinnslu. Við höfum einmitt talað um Vestfirði, um Vestmannaeyjar og að það eigi að hugsa um þessa samfélagslegu nálgun þegar við erum að nálgast orkumálin, því að vitið þið hvað? Það er sagan okkar. Orkumálasagan er samfélagssaga.
Það er alveg rétt hjá hæstv. ráðherra að við erum að færast yfir í markaðskerfi. Og ég spyr hann út í hans eigin markmið, hvernig þessi nýting á að nýtast til að ná þeim markmiðum sem ríkisstjórnin hefur sjálf sett. Hér hlýtur að þurfa að vera samhengi á milli aukinnar orkuvinnslu og þeirra markmiða sem ríkisstjórnin hefur sett um full orkuskipti fyrir árið 2040. Ef það er ekki samhengi þarna á milli þá er augljóslega ekki verið að lifa í takti við væntingar kjósenda og ekki verið að ná fram þeim markmiðum sem ríkisstjórnin hefur sjálf sett sér.