breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Ríkisstjórnin hefur einsett sér að styðja áfram við það markmið að ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2040. Það liggur fyrir aðgerðaáætlun í loftslagsmálum sem við vinnum nú að því að uppfæra. En auk þess leggjum við áherslu á aukna orkuframleiðslu. Þar er þumalfingursreglan sú að unnt verði að auka raforkuframleiðslu um 5 TWst á næstu tíu árum. Til þess þarf m.a. að setja þá kosti í nýtingarflokk sem lagt er til að fari í nýtingarflokk í þessari tilteknu rammaáætlun. Þetta markmið gerir ráð fyrir því að við getum haldið góðum gangi í orkuskiptum en líka stutt við fjölbreytt atvinnulíf um allt land, stutt við landeldi, gagnaver og fleiri mikilvæg verkefni. Allt er þetta í samræmi við áherslur okkar á aukna verðmætasköpun, hraðari orkuskipti og byggðaþróun um allt land. Þetta fer bara fullkomlega saman. Það er ekki þannig að við virkjum okkur einhvern veginn út úr loftslagsvandamálinu. Það er ekki þannig. Hins vegar þurfum við aukna orkuframleiðslu til að standa undir markmiðum okkar í loftslagsmálum. Ég hef ekki áhyggjur af því að sú aukna orkuframleiðsla sem er mælt fyrir um í þessari tilteknu rammaáætlun sem ég legg hér fram muni ekki skila sér að verulegu leyti einmitt til almennra notenda, m.a. þeirra sem keyra um landið á rafbílum. Það er þjóðþrifamál hér að ná fram aukinni orkuframleiðslu og það er það sem við erum að gera með þessari rammaáætlun. Svo eru aðrir lagabálkar og m.a. aðgerðaáætlun í loftslagsmálum sem mælir sérstaklega fyrir um þá hvata og lata sem eru nýttir til þess einmitt að tryggja að orku sé varið til orkuskipta. Það er allt önnur umræða (Forseti hringir.) og það er ekki það sem við gerum hér þegar við samþykkjum og mælum fyrir rammaáætlun á Alþingi.