breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna, Höllu Hrund Logadóttur. Nú hefur hv. þingmaður mikla reynslu af orkumálum sem orkumálastjóri þjóðarinnar og ég vil spyrja út í þessar miklu breytingar sem hafa orðið almennt í umræðunni sem snýr að þjóðaröryggismálum, mikilvægi innviða, náttúruvánni, við sjáum Reykjanesið þar sem eru sex eða sjö jarðvarmakostir sem hafa verið inni í áætlunum. Nú breytast kannski svolítið áherslur á næstu misserum eftir því sem við sjáum hvernig þetta þróast á þeim slóðum. Í dag erum við að ræða t.d. Skatastaðavirkjun og vatnasvið Héraðsvatna og setja þá kosti aftur í vernd sem umhverfis- og samgöngunefnd óskaði eftir að verkefnahópurinn kringum rammaáætlun myndi skoða á nýjan leik. Ég vil spyrja um áherslu á þjóðaröryggisþáttinn og það sem við erum að upplifa núna á Reykjanesi og þessa jarðskjálfta en Héraðsvötnin og vatnasvið þess er talið eitt öruggasta svæði í landinu gagnvart náttúruvá: Hvernig lítum við á þessi mál á næstu árum sem snúa að þessu, til þess að tryggja þetta, að við ætlum okkur að fara í orkuskipti og fara að treysta alfarið á raforku og raforkuvæða samfélagið að fullu? Ég hef aðeins breytt um skoðun, ég var nú í orkustefnuvinnunni hérna um árið og á kannski erfitt með að sjá að það rætist að fullu, 100%. Það væri áhugavert að fá frá hv. þingmanni sýn hennar á þessa þætti.
(Forseti (HildS): Forseti beinir því til hv. þingmanna að vísa til annarra þingmanna sem hv. þingmanna en ekki eingöngu með nafni.)