breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Ég þakka andsvarið. Það er rétt og ég tek undir með hv. þingmanni að raunverulega er það öflugt flutningskerfi raforku sem er hjartað í íslenska raforkukerfinu og skiptir öllu máli. Þess vegna er gríðarlega mikilvægt að endurbygging á gamla byggðalínuhringnum sé hafin. Við höfum séð mikinn árangur fyrir norðan einmitt, Kröflulína 3 og Hólasandslína 3 voru teknar í notkun fyrir þrem, fjórum árum. Það gjörbreytti stöðunni í Eyjafirði þannig að því sé haldið til haga. Og einmitt til þess að byggja inn þessa ólíku jarðvarmakosti, vatnsaflið og vindinn í eitt kerfi þá þarf þetta öfluga flutningskerfi raforku.
Mig langar síðan að spyrja aðeins um það sem hefur aðeins verið í umræðunni í dag varðandi rammaáætlun. Ég man að þegar við vorum með rammaáætlun 3, ég var að rifja þetta upp í huganum áðan, þá var lítið litið til vinnuhópa þrjú og fjögur í þeirri vinnu, samfélagslega hópsins í vinnuhópi þrjú og svo efnahagslega hópsins í vinnuhópi fjögur. Það var sagt að eiginlega vegna tímaskorts var sú vinna bara þurrkuð út þannig að hún var ekki kláruð alla leið. Nú erum við að vinna hérna eftir sjálfbærnimarkmiðum sem snúa að rammaáætluninni þar sem við lítum til efnahagslegra, samfélagslegra og umhverfislegra þátta, það er þetta samhengi hlutanna. Var það ekki slæmt á sínum tíma að sú vinna skyldi ekki hafa verið kláruð að fullu, samanber líka þegar það er verið að þurrka út heilu vatnasviðin eins og Skjálfandafljót og Héraðsvötn í þeirri vinnu sem þá var uppi?