breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég hef þá sýn í orkumálum að sættir séu góð leið. Við komumst ekki alltaf þangað af því að það eru ólík sjónarmið. En í því samhengi held ég að það skipti máli að allir ólíkir vinnuhópar klári sína vinnu. Það þýðir einfaldlega að það er minni gagnrýni á lokaniðurstöðu ef það næst. Heilt yfir tel ég að það sé mikilvægt og ég held að það sé gríðarlega mikilvægt núna fyrir næstu ár í orkumálum að við séum með sterka samfélagssýn, af því að hv. þingmaður nefndi flutningskerfið, að við séum með þá sýn að við horfum á það að forgangsraða verkefnum sem snúa einmitt að Vestfjörðum, Vestmannaeyjum, ég get nefnt staði á Austurlandi og fleiri stöðum þar sem raunveruleg þörf er á að bæta flutningskerfið, bæta aðgengi fyrir íbúa, bæta tækifæri fyrir atvinnulíf. Reynum að halda í þessa samfélagslegu hugsun þegar við höldum áfram.
Mig langar að segja varðandi orkuskiptin að ég tek undir það, og það er kannski punkturinn líka hér, að það er auðvitað mikil óvissa t.d. þegar kemur að orkuskiptum á hafi. Það er, eins og ég kom aðeins inn á áðan, vegna þess að það eru einfaldlega ekki til innviðirnir í ólíkum höfnum. Við erum að tala um það að rafeldsneyti er dýrara þannig að þetta er líka hluti af þessu. Þegar stjórnvöld eru að setja svona markmið fram þá þarf að meta hvað það þýðir. Hvað þýðir það fyrir hagkvæmni sjávarútvegsins? Hvað þýðir þetta fyrir ólíkar atvinnugreinar? Þess vegna þarf innleiðingin og hvatarnir að taka mið af því þannig að við séum ekki að gera okkar lykilatvinnugreinar minna samkeppnishæfar um leið. (Forseti hringir.) Það er þessi heildarmynd og þessi nákvæmnisdýpt sem við þurfum í orkumálum.