156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

101. mál
[18:35]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma með þessa fínu áætlun til okkar. Ég verð að segja það að mér finnst nálgun ráðherra á málið og hans skilaboð til þingsins vera mjög jákvæð. Það er lagður ákveðinn grunnur hérna og síðan er það þingið sem tekur við og vinnur málið áfram. Og til þess er nú þingið einu sinni, það er þingsins að takast á við verkefnið og vinna það. Það er ágætisgrunnur hér sem er lagt upp með. Er ég sammála honum að öllu leyti? Nei, ég er það nú ekki en í grunninn þá er hér ákveðin vísbending.

Ég tek undir með hv. þingmönnum sem hafa tjáð sig hér varðandi vatnasvið fyrir norðan, eins og í Skagafirði og á fleiri stöðum, ég held að við eigum að horfa varlega til þess að vera með of marga virkjunarkosti í verndarflokki og ganga hægt um gleðinnar dyr þegar kemur að friðlýsingum vatnasvæða sömuleiðis. Við þekkjum það þegar t.d. Jökulsá á Fjöllum var friðlýst með pompi og prakt fyrir nokkrum árum síðan og síðan var hún tekin til baka í Hæstarétti.

Það er nú einu sinni þannig að við búum hér á eyju þar sem allra veðra er von, það er von á ýmsum jarðhræringum og öðru. Við erum að horfa til þess núna t.d. að Bárðarbunga er farin að hrista sig. Hvaða áhrif hefur það ef þar fer allt á versta veg? Þannig þurfum við held ég að hugsa þetta. Við þurfum að vera meira undirbúin til að takast á við þá náttúruvá sem er til staðar. Hún verður til staðar svo lengi sem þetta land verður byggt. Það liggur alveg fyrir.

Við höfum verið heldur kærulaus hvað það varðar að horfa til þjóðaröryggismála, sem er gríðarlega mikilvægt, og horfa til þess að köld svæði hafi aðgengi að orku. Við erum að horfa til þess t.d. að það eru hér litlar virkjanir á Norður- og Austurlandi. Ég vil t.d. nefna það hér að unnin hefur verið ákveðin undirbúningsvinna í Skjálfandafljóti að Einbúavirkjun, sem er áhugaverð rennslisvirkjun sem mig minnir að séu einhver 9,8 MW og svo sem ekki mikið rask þar á umhverfi en hefur setið fast þegar kemur að skipulagi sveitarfélagsins. Svona litlir kubbar inn í þetta stóra kerfi okkar eru nauðsynlegir. Við þurfum ekki alltaf að vera að tala um einhverjar risavirkjanir. Við eigum að horfa til allra virkjanaþátta til að styrkja raforkukerfið sem við erum að byggja upp.

Fyrst ég er nú búinn að vera staddur í þessari stuttu ræðu minni á Norðurlandi þá ætla ég bara að halda áfram og fara austur fyrir. Geitdalsárvirkjun; það er enn tekist á um það að koma því verkefni áfram. Hamarsvirkjun var sett í vernd. Svona getum við lengi haldið áfram. Svæði t.d. eins og sunnanverðir Austfirðir eru sveltir raforku. Við verðum sömuleiðis að horfa til þess að það er á sumum svæðum ansi snúið að flytja orku til þessara svæða. Er þá ekki heppilegra að við horfum til þess að virkja á þessum svæðum þar sem við erum nú með hálfgerðan eyjarekstur á sumum af þessum svæðum? Ef við færum t.d. í Einbúavirkjun þá væri hægt að vera með ákveðinn eyjarekstur í Bárðardal ef eitthvað kæmi fyrir á leiðinni að austan og til Akureyrar. Öllum þessum þáttum þurfum við að halda til haga.

Í þessu frumvarpi er farið ágætlega yfir þá flokka sem eru í verndarflokki, í biðflokki og nýtingarflokki. Ég hvet bara hv. umhverfis- og samgöngunefnd til að fara djúpt í þessi mál og hafa öryggismálin, þ.e. þjóðaröryggið, alltaf bak við eyrað vegna þeirrar náttúruvár sem blasir við okkur. Ég held að það hafi verið ýmsar dómsdagsspár um það ef Bárðarbunga hristir sig t.d. allhraustlega, hvorum megin flóðið myndi fara. Ef það færi hér suður fyrir þá myndi það væntanlega taka mikið af þeim virkjunum sem eru á Suðurlandinu. Og hvað gerum við þá? Þetta getur allt gerst. Ég ætla samt ekki, frú forseti, að vera hér með einhverjar dómsdagsspár en við þurfum að vera undirbúin undir þetta. Það er lykilatriði. Ég ætla svo sem ekki að vera hér áfram í einhverjum dómsdagsspám um það hvað getur gerst og annað en við þekkjum það alveg, hafandi búið hér á þessu landi í rúm 1.000 ár, að það er von á ýmsu.

Framtíðin ef vel er á málum haldið getur spilast vel varðandi orkuöflun og nýtingu á orku. Það er kallað eftir orku nær alls staðar. Fram undan er gríðarleg uppbygging hér á landeldi. Það er nú svo merkilegt með það að landeldi er svo sem háð því að vera byggt upp þar sem gosbeltið er, sem helgast nú bara af því hversu auðvelt er að ná í sjó og vatn. Við höfum farið í heimsóknir sumir hv. þingmenn og fengið tölur um það hversu mikla orku þarf. Ef ég man þetta rétt þá hefur nú verið að talað um einhver 200 MW bara í landeldið sem er verið að byggja upp í Þorlákshöfn. Það er ein Hvammsvirkjun (Gripið fram í: Tvær.)eða tvær Hvammsvirkjanir. Þetta er ekkert smáræði sem fram undan er.

Ég met það svo og mér finnst það svo jákvæð og góð skilaboð frá hæstv. ráðherra að koma núna fram og hann veit það líka að það er ansi mikil jákvæðni fyrir þessum málum á þessu þingi. Fyrrverandi hæstv. ráðherra, núverandi hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson, veit ég að öfundar í dag hæstv. ráðherra af þeirri stöðu sem hann er í, hafandi verið á öðrum vettvangi undanfarin sjö ár.

Aftur á móti: Nýtum nú þann samtakamátt sem getur myndast hér á hinu háa Alþingi, bæði í nefndarstörfum og í umræðum í þingsal. Vinnum málið áfram. Það er held ég bara heillaskref fyrir land og þjóð að taka skynsamlegar ákvarðanir í því að nýta orkuna þar sem hún er. Horfum til þeirra landsvæða þar sem æskilegt að mínu viti væri að fara til virkjana, eins og t.d. norður í Skagafirði. Ég hef hingað til horft mikið til þess. Eins og hefur komið fram í ræðum, ég held það hafi verið hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson sem kom inn á að á því svæði er sennilega minnsta náttúruváin á landinu. Ég veit það sömuleiðis að sveitarfélög fyrir austan og sömuleiðis fyrir norðan hafa verið að kalla eftir því að farið verði í það að taka næstu skref varðandi þessa virkjunarkosti.

Frú forseti. Það er mikilvægt í þessu samhengi að velta þessu við. Við skulum ekki taka of stór skref heldur horfa öll í sömu áttina, að því að nýta orkuna sem rennur óbeisluð til sjávar, landi og þjóð til heilla.