156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

101. mál
[18:58]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er bara ánægður með að heyra það að þessi sjónarmið sem komu fram hér áðan, að það væri alveg ómögulegt að ríkisstjórnin væri að mæla fyrir aukinni orkuframleiðslu meðan ekki væri búið að ráðstafa með einhvers konar lagasetningu orkunni til tiltekinna verkefna og það var sérstaklega minnst á orkuskipti í því samhengi, séu ekki sjónarmið, og ég bara fagna því, sem hv. þingmaður og þingflokksformaður Framsóknarflokksins tekur undir vegna þess að ég held að það sé bara mjög mikilvægt að við í þessum sal sameinumst um aukna orkuframleiðslu.

Svo er hitt auðvitað líka mikilvægt, og það er á dagskrá þessarar ríkisstjórnar, að tryggja vernd almennra notenda þegar kemur að raforku og að horfa til samfélagslegra sjónarmiða almennt í raforkumálum. Við vorum nú sammála um það hér áðan, ég og hv. þingmaður, að það væri mikilvægt m.a. í ferli rammaáætlunar að það væri horft til flutningskerfisins, stöðu þess á hverjum stað og horft til slíkra sjónarmiða í vinnu faghópa verkefnisstjórnar rammaáætlunar. Það er alla vega mikilvægt að fá þetta fram, að það sé ekki almenn skoðun Framsóknarflokksins eða þingflokks Framsóknarflokksins að það eigi að bíða með að leggja fram rammaáætlun meðan ekki hefur verið lögfest sérstaklega að orkan fari í tiltekin verkefni. Ég held að það væri mjög vond nálgun fyrir okkur löggjafann að fara að setja allt einhvern veginn í stopp á meðan við færum að koma okkur saman um einhverja slíka lagasetningu.