breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir að leggja fram þessa þingsályktunartillögu og það er margt ánægjulegt í henni og annað ekki alveg eins ánægjulegt. Förum aðeins yfir hver staðan er í raforkumálum í dag, hvaða verkefni eru á sjóndeildarhringnum og við erum að fara í á næstu árum: Hvammsvirkjun, stækkun Sigöldu, stækkun á Þeistareykjum, Búrfellslundur og Blöndulundur. Þetta eru þau verkefni upp á samtals um 350 MW sem eru í farvatninu í dag og það er vel. Það var líka ánægjulegt að sjá að Holtavirkjun og Urriðafossvirkjun og Skrokkölduvirkjun ættu að fara úr biðflokki í nýtingu. Holtavirkjun er um 450 GWst, Urriðafossvirkjun er 1.037 GWst og Skrokkölduvirkjun 345 GWst, rétt rúmlega 1.800 GWst sem verið er að taka úr biðflokki í nýtingu og það er vel. Það er hins vegar sorglegra að sjá Kjalölduveitu, sem er 630 GWst, og Skatastaðavirkjun, ef við tökum Skatastaðavirkjun D sem er með þá Villinganesvirkjun inni í upp á 1.090 GWst, rétt rúmlega 1.700 GWst, sem eru að fara úr biðflokki í vernd. Það er eiginlega jafn mikið af gígavattstundum sem eru að fara úr biðflokki í vernd og eru að fara úr biðflokki í nýtingu. Og ég sakna þess að sjá ekki Hamarsvirkjun akkúrat inni í þessari tillögu hérna, og ég býst við að hún komi þá til þingsins núna fljótlega, en það er 60 MW virkjun á Austurlandi þar sem tillagan er sú að hún fari úr biðflokki í vernd, 60 MW virkjun á Austurlandi þar sem Samtök sveitarfélaga á Austurlandi, allar sveitarstjórnir á Austurlandi og ég held allir þeir sem hafa haft möguleika á Austurlandi hafa mótmælt því að þessi virkjun fari í vernd, hafa sent frá sér athugasemdir. En það er samt tillagan og ég trúi ekki öðru en að þingið muni snúa við þeirri ákvörðun þegar það kemur hingað inn. Þar sem Hamarsvirkjun á að koma er nú þegar raskað svæði þannig að það er ekki eins og það sé verið að fara inn á óraskað svæði með Hamarsvirkjun.
En við skulum aðeins halda áfram hér. Við erum að horfa á að við erum að setja sirkabát til helminga í vernd og í nýtingu. Og hvað höfum við verið að ræða hér og hvað hefur verið aðalumræðan í rauninni um orkumál á Íslandi? Það á að fara að leggja hér fyrir og það er verið að tala um það hvernig á að forgangsraða orku til heimila og smærri fyrirtækja á Íslandi. Á Íslandi á að fara að forgangsraða orku af því að við erum búin að búa til orkuskort á Íslandi. Við komum líka upp á tyllidögum og tölum um orkuskipti. En hvernig ætlum við að fara í orkuskiptin? Olíunotkun Íslendinga er um 13 TWst á ári eða 13.000 GWst. Við erum að keyra fiskimjölsverksmiðjurnar á Austfjörðum, um 200.000 lítra á sólarhring, á olíu af því að það er ekki til orka. Við erum með rafhleðslustöðvar á landsbyggðinni sem eru keyrðar áfram á dísilstöðvum af því það er ekki til orka eða það er ekki hægt að flytja orkuna. Samkvæmt orkuspá Landsnets þarf 5 TWst fyrir 2035. Það eru 5.000 GWst. Meira að segja þessir virkjunarkostir sem við erum að tala um hér duga ekki til fyrir orkuspá Landsnets fyrir 2035. En til að fara í full orkuskipti þarf til viðbótar 16 TWst. Það eru 16.000 GWst. Þannig að samtals, ef við ætlum að fara í full orkuskipti, Íslendingar, þá þurfum við að virkja eða fara í græna orku upp á 21.000 GWst.
Ég velti því fyrir mér: Hvernig ætlum við að halda áfram með þetta mál? Hvernig ætlum við, ef við horfum núna fram á veginn, að tala um orkumál þegar við erum að taka stóra orkukosti eins og Skatastaðavirkjun, sem ekki bara er yfir 1.000 GWst virkjun heldur skiptir líka gríðarlega miklu máli þegar kemur að þjóðaröryggi? Við sjáum núna og heyrum fréttir af skjálftum í Bárðarbungu. Ef Bárðarbunga gýs og ef flóðið fer suður fyrir þá er allt Þjórsársvæðið undir. Við hljótum því að horfa á virkjunarkosti sem eru utan Þjórsársvæðisins líka. Þar er t.d. Skatastaðavirkjun og Hamarsvirkjun. Það er nú bara þannig að virkjanir stórbæta aðgang almennings að hálendi Íslands og á fáfarnar slóðir. Sem Austfirðingur þekki ég best til þess hvernig Kárahnjúkavirkjun hefur aukið aðgang okkar Austfirðinga, gesta og ferðamanna að Hafrahvammagljúfrum. Stuðlagil, einn eftirsóttasti ferðamannastaður landsins, varð allt í einu til og rúsínan í pylsuendanum er að við fengum eina flottustu laxveiðiá landsins. Þetta er í rauninni það sem getur gerst þegar við virkjum, að við aukum aðgengi að okkar fallega hálendi og okkar fallegu stöðum og getum búið til náttúruperlur í leiðinni. Við megum ekki gleyma því að ferðamennirnir koma hingað, koma frá Evrópu og annars staðar að þar sem kolaorkuverin eru, gasorkuverin eru og þeir sjá vatnsaflið og grænu orkuframleiðsluna og þeim finnst þetta frábært.
Ábyrgð okkar er mikil hér á Alþingi. Við berum ábyrgð gagnvart þjóðinni og við verðum að horfa til þess þegar við tölum um orkumálin að við komumst einhvern veginn áfram. Við verðum að komast einhvern veginn undan þessum viðjum þunglamalegra reglugerða og tilskipana. Rammaáætlunin, eins og hún er núna og eins og hún hefur verið að virka, er í mínum huga í rauninni úr sér gengin. Það er nefnilega svolítið merkilegt, af því að við erum að ræða virkjunarmál og við erum að ræða vatnsaflsvirkjanir, að samkvæmt skoðanakönnun sem Samtök atvinnulífsins gerðu þá voru, af þeim sem tóku afstöðu, 97% landsmanna fylgjandi frekari vatnsaflsvirkjunum, 97%. Þegar við erum að hugsa um vatnsaflsvirkjanir þá er það ekkert sem er riggað upp á nokkrum árum og fyrir orkufyrirtækin í landinu verðum við að hafa 20–30 ára fyrirsjáanleika í því hvernig við ætlum að virkja.
Það mun skrifast á okkur hér á Alþingi ef við komum þessum málum ekki í réttan farveg og ég skora á hæstv. ráðherra og ég skora á okkur á Alþingi að a.m.k. stöðva það að þessir virkjunarkostir sem nú er verið að leggja til að fari í vernd — að þeir verði a.m.k. áfram í biðflokki. Ég myndi vilja sjá þá fara áfram upp í nýtingu en við skulum a.m.k. halda þeim áfram í biðflokki af því að ef við ætlum að fara í orkuskipti og mæta aukinni orkuþörf þjóðarinnar, ef við ætlum að halda áfram að vera hér með hagvöxt sem byggir upp velferð og velsæld, þá höfum við ekki efni á að taka þessa stóru kosti og setja þá í vernd.