breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Virðulegi forseti. Ég held að þessi umræða hafi verið prýðileg í dag enda veitir ekki af. Mér finnst hins vegar ýmislegt hérna að vera þess eðlis að það er allt í lagi að koma fram með það, af því að við ræðum þetta mál í stærra samhengi. Það er stundum talað eins og markaðsvæðingin sé að byrja núna. Við ákváðum það 2003. Ég veit ekkert af hverju fólk er að segja: Heyrðu, áður en markaðsvæðingin verður þá þurfum við gera eitthvað. Hún er löngu byrjuð. Ég var að setjast á þing hérna 2003, kom ekki nálægt þessu. Þá skiptum við þessu upp, virðulegur forseti. Áður var stærsti hluti flutningskerfisins í eigu Landsvirkjunar og annarra orkufyrirtækja, ekki í sérfélagi. Það var heljarinnar uppskipting þegar Landsnet varð til. Við getum litið svo á að flutningskerfið sé eins og þjóðvegirnir og síðan ertu með dreifiveiturnar sem eru í fleiri fyrirtækjum og þetta er allt háð sérleyfi og þau þurfa öll gjaldskrá og allir hlutir taka mið af því sem eftirlitsaðilarnir samþykkja, svo maður einfaldi hlutina. Síðan er bara hugsunin sú að allir geti notað þetta vegakerfi, annars vegar þjóðvegakerfið og hins vegar tengivegina sem eru dreifiveiturnar. Svo getur hver og einn ákveðið það, að uppfylltum auðvitað skilyrðum og leyfum og öðru slíku, að hefja framleiðslu á raforku og selja inn á kerfið.
Menn eru búnir að gera þetta mjög lengi. Það er gömul saga í þessu en við höfum tilhneigingu til að líta á þetta þannig að ríkið hafi alltaf verið sá aðili sem hafi staðið fyrir öllu sem snýr að orkuvinnslu. Það er ekki þannig. Árið 1950 voru 500 smávatnsaflsvirkjanir í landinu. Orkustofnun metur það að það sé hægt að búa til 2.500 smávatnsaflsvirkjanir og í minni tíð í ráðuneytinu þá settum við af stað átak til að hvetja menn til að fara í smávirkjanir vegna þess að við þurfum líka á þeim að halda. Það er mikilvægt og ég treysti því að ríkisstjórnin og hæstv. ráðherra komi fram með frumvarp, sem var í undirbúningi, sem snýr að því að tryggja að það sé hægt að selja inn á kerfið. Það séu þessir hvatar sem menn hafa. Það þarf ekki að vera vatnsafl. Það geta verið litlar virkjanir með vind, birtuorku, þess vegna jarðvarma. Við munum sjá enn hraðari þróun hvað þetta varðar. Hins vegar varðandi þennan markað þá hefur verið slæmt hvað þingið hefur verið dapurt í því að klára mál sem ég hef komið með hérna inn sem snýr að því að koma með hátternisreglum inn á þennan markað því það er markaður í gangi. Menn eru að kaupa og selja raforku. En það eru hins vegar engar reglur um þennan markað eins og eru með aðra markaði eins og t.d. í Kauphöllinni og öðru slíku. Það skiptir máli að það sé gagnsæi á þessum markaði og það skiptir máli af því að það er besta leiðin til að skapa traust.
Síðan hjó ég eftir því að hér var verið að tala um það og það urðu nokkur orðaskipti milli hæstv. ráðherra og hv. þingmanns um að það væri ekki hægt að virkja sig út úr loftslagsvandanum. Í rauninni er það þannig. Ef við tökum eitt út í sambandi við hvað loftslagsmálin ganga út á, og auðvitað eru fleiri þættir sem hjálpa til, þá er langstærsti hlutinn bara sá að við erum að taka út jarðefnaeldsneyti og við erum að setja græna orku í staðinn. Við Íslendingar höfum meiri reynslu af þessu heldur en flestar þjóðir sem við berum okkur saman við og ef við ætlum að fara í orkuskiptin — auðvitað snýst þetta líka um föngun og ýmislegt annað, en langstærsti hlutinn er bara þessi, að við ætlum að taka út bensín og dísil og setja græna orku í staðinn. Í bílum, litlum og stórum, og sömuleiðis í flugvélum og skipum. Varðandi flugvélar og skipin þá eru miklar vonir bundnar við rafflugvélar, síðast þegar ég skoðaði það, en það er allt innan lands. Hins vegar þegar kemur að rafeldsneytinu þá er lengra í það. Þó að það sé allt saman til og við Íslendingar höfum gert það í áratugi, eins og með vetnið, þá er auðvitað lengra í að það verði algjörlega tilbúið.
Ég er mjög ánægður að hæstv. ráðherra hafi haldið sig við þá áætlun sem var til staðar hjá fyrri ríkisstjórn og leggi þennan ramma strax fram. Það er mjög mikilvægt. Ég veit að hinn kemur fljótlega líka vegna þess að okkur liggur á og við þurfum að vinna hratt.(Forseti hringir.)
Og það er rétt sem hefur komið fram, virðulegi forseti, að ég öfunda hæstv. ráðherra af þeim þingheimi sem er hér. Þó að hinn hafi verið mjög góður þá er þessi miklu betri þegar kemur að orkumálunum.