breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Frú forseti. Þetta er búin að vera fín og góð umræða hérna í dag um þetta ágæta mál. Það er alltaf mikilvægt að ræða hér raforkumálin og framleiðslu á raforku og flutningskerfið og það sem kemur inn á það raforkukerfi sem við búum við á Íslandi í dag, merkileg saga og raunar grundvallarinnviðir okkar samfélags og hefur stór áhrif á samkeppnishæfni landsins og á þau lífskjör sem við búum við hér á landi. Þessi umræða er alltaf stór og mikilvæg hér í þingsal og hún er búin að vera bara með ágætum í dag.
Rammaáætlanir, eins og þær fóru af stað hérna um árið, þetta var tæki sem átti að stuðla að víðtækri sátt um uppbyggingu raforkukerfisins, uppbyggingu virkjana, en fór kannski fljótt í þannig farveg að sáttin varð ekki endilega mikil. Þetta hefur alltaf verið mjög erfitt. Ég man þegar tekist var á um þetta fyrir hv. umhverfis- og samgöngunefnd fyrir þremur árum og þetta fór hér í gegnum þingið, sem var náttúrlega mjög ánægjulegt. Þá hafði það ekki gerst í níu ár að ramminn kæmist í gegnum þingið.
Mig langar aðeins að vitna í orkustefnu til ársins 2050, Sjálfbær orkuframtíð, sem var kynnt fyrir tæpum fimm árum og var þverpólitískt skjal þeirra átta flokka sem þá sátu á Alþingi. Í skjalinu er sett fram langtímaorkustefna fyrir Ísland til ársins 2050. Svo að ég vitni í stefnuna, með leyfi forseta:
„Orka varðar alla Íslendinga og kemur daglega við sögu í lífi landsmanna. Aðgengi að orku, jafnt varma, rafmagni og eldsneyti, er hluti af almennum lífsgæðum almennings og jafnframt forsenda þess að hana megi nýta sem aflgjafa til að knýja hjól atvinnulífsins. Verðmætasköpun af endurnýjanlegum orkuauðlindum er þannig ein af undirstöðum lífskjara á Íslandi. Orkuöryggi og tryggt orkuframboð er grundvallarþáttur í þjóðaröryggi Íslands. […]
Með langtímaorkustefnu er stefnt að því að gæta hagsmuna núverandi sem komandi kynslóða. Þar er sjálfbær þróun höfð að leiðarljósi, sem endurspeglar jafnvægi milli efnahagslegra, samfélagslegra og umhverfislegra þátta. Stefnan er uppbyggð með framtíðarsýn, leiðarljósum og meginmarkmiðum.“
Þetta er það sem stendur m.a. í stefnunni en það sem hefur kannski breyst frá því að við vorum að vinna við þessa stefnu á sínum tíma, þegar við sátum í þessum starfshópi, er það sem við höfum verið að upplifa í landinu varðandi náttúruvána. Hún hefur komið inn af miklum krafti og það hefur kannski truflað okkur svolítið þegar við höfum verið að skoða orkumál þjóðarinnar á síðustu árum hversu rólegt hefur verið á Íslandi út frá jarðhræringum undanfarin 100 ár og þá sérstaklega á Reykjanesskaganum. Nú er það svo að í rammaáætlunum og þeim hugmyndum sem hafa verið um jarðvarmavirkjanir á Reykjanesskaganum, sem eru sex eða sjö talsins, þá hefur það verið svolítið uppistaðan í því sem hefur verið talið virkjanlegt í landinu á undanförnum misserum. Þær jarðhræringar sem hófust þar fyrir um þremur, fjórum árum breyta náttúrlega svolítið heildarsýninni sem snýr að raforkuvinnslunni og það þarf að horfa til nýrra hluta og nýrra svæða. Það sem kannski hefur komið mest fram í þeirri umræðu er að líta til þess hvað eru öruggustu svæðin í landinu út frá náttúruvá. Þá hefur m.a. komið fram að, ef við lítum bara út frá íbúabyggð og slíku, ef litið er til Egilsstaða, Akureyrar og nágrennis, Skagafjarðar, Húnavatnssýslunnar, eru þau svona örugg svæði út frá náttúruvá þegar litið er til flestra þátta.
Það sem við erum að ræða í dag eru m.a. Héraðsvötnin og þær hugmyndir sem hafa verið uppi varðandi nokkra kosti í sambandi við Skatastaðavirkjun og Villinganesvirkjun sem er verið að færa hér aftur í vernd. Þegar umhverfis- og samgöngunefnd afgreiddi rammann á sínum tíma fyrir nokkrum árum vísaði hún aftur til verkefnahóps rammaáætlunar að skoða möguleika varðandi Héraðsvötnin. Í þessu plaggi sem við ræðum hér í dag kemur fram að þar er lagt til, af verkefnahópnum, að Skatastaðavirkjun og þær hugmyndir sem hafa verið uppi þar, C- og D-kosturinn og Villinganesvirkjun, fari í vernd. Ég hefði viljað persónulega líta á hlutina með þeim hætti að vegna þeirra breytinga sem hafa orðið í umhverfinu á Íslandi á undanförnum árum hefði átt að skoða það hvort við gætum komið þessum málum í það ferli að það yrði ekki tekin ákvörðun einn, tveir og þrír varðandi þennan þátt, þá út frá þessum þjóðaröryggishagsmunum sem ég hef verið að leggja áherslu á í dag í umræðunni. Þetta er svolítið það sem ég hef áhyggjur af. Það er líka þessi raforkuvæðing samfélagsins. Við ætlum að fara í þessi orkuskipti. Það er fyrst og fremst efnahagsmál fyrir þjóðina að raforkuvæða. Það er hægt að kaupa innlent eldsneyti og minnka það sem við erum að setja í jarðefnaeldsneyti, yfir 100 milljarða á ári. Þetta er kannski það sem ég geri helst athugasemd við, að það sé verið að setja vernd á vatnasvið Héraðsvatna og að setja áður á vatnasvið Skjálfandafljóts með sama hætti, eins og kemur fram í þessari tillögu þar sem er búið að friða það vatnasvið. Það er ekki það mikið af vatnsafli næstu áratugina til þess að virkja og við erum komin langt með þá kosti sem eru í stöðunni og þá þarf a.m.k. að gæta þess að framtíðarkynslóðir eigi möguleika á að nýta þessa kosti eins og Skatastaðavirkjun og mögulega í Skjálfandafljótinu, vatnasviðinu.
Það er ein önnur breyting líka, ég þekki ekki hversu djúpt var farið í það í rammaáætlun, að efnahagslegi þátturinn hefur náttúrlega breyst gríðarlega mikið frá því fyrir kannski 15 árum þegar við vorum að skoða hugmyndir um ýmsa kosti. Þá var verkefnahópur 4 í vinnu og átti að skoða efnahagslega þáttinn. Raforkuverð í landinu hefur náttúrlega farið hækkandi, verðmætin eru orðin meiri í raforkunni, hún er orðin dýrari, þannig að efnahagslegi þáttur einstakra virkjana verður sterkari með tíð og tíma. Það er áhugaverður punktur.
Síðan vil ég koma inn á rétt í lokin mikilvægi þess, þegar um er að ræða þetta samhengi hlutanna og orkuöryggisþáttinn, hversu gríðarlega mikilvægt það er, líka til að geta farið í að virkja vatnsaflið, að við höfum öflugt flutningskerfi raforku á svæðunum, þannig að það sé hægt að flytja orkuna á milli svæða. Þegar gamla byggðalínan var lögð á sínum tíma, fyrir 40–50 árum, þá gat hún flutt um 20–25% af aflgetu virkjana í landinu. Ætli þetta hlutfall í dag sé ekki svona í kringum 3–4%, ætli það sé ekki nær 3%, 100 MW flutningur sirka. En nú er uppbyggingin hafin. Það á að byggja upp öflugra flutningskerfi raforku sem fjórfaldar, fimmfaldar flutningsgetuna í landinu þannig að þá kemst hlutfallið með aflgetu virkjana í dag upp í svona 15–20% af aflgetu virkjana í landinu. Það er gríðarlega mikilvægt, eins og við þekkjum núna þegar við erum farin að upplifa þennan vatnsskort í lónunum, að geta tengt þessi helstu svæði, lónssvæði Þjórsár, Tungnaársvæðið, Blöndulón og síðan fyrir austan á Kárahnjúkasvæðinu, Hálslón. Þá er mikilvægt að geta verið með öflugra kerfi til að tengja á milli. Þetta flutningskerfi er náttúrlega grundvallarþátturinn í því að við getum verið að virkja vatnsaflið og jarðvarmann og mögulega vindinn. En öryggisþátturinn, þjóðaröryggið sem snýr að raforkumálunum, það held ég að verði svolítið mál sem við þurfum að velta fyrir okkur með sterkari hætti í umræðunni sem snýr að rammaáætlun.