156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

101. mál
[19:27]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir góða ræðu. Mig langar að nefna eitt atriði varðandi þennan kost sem liggur nú fyrir, þ.e. þann hluta sem þingmaðurinn ræddi, Skatastaðavirkjun og/eða virkjanirnar í Skagafirði. Verkefnisstjórninni var falið að skoða mjög afmarkaða þætti þannig að hagkvæmni kostsins kom ekki til skoðunar sérstaklega. En það var verið að meta þar verðmæti svokallaðra flæðiengja, hvort það hefði hugsanlega verið of hátt. Það takmarkaði auðvitað svolítið vinnu verkefnisstjórnarinnar við þetta.

Varðandi síðan samspil einstakra faghópa þá eru enn þá þessir fjórir faghópar. Það eru náttúru- og menningarminjar og önnur nýting en orkuvinnsla eins og t.d. ferðaþjónusta, útivist og landbúnaður og síðan eru þá samfélagslegu áhrifin. Svo var mjög öflugur hópur í faghópi fjögur hjá verkefnisstjórninni, í fimmta áfanga. Það var öflugt fólk þar en það skoðaði ekki þennan kost.