156. löggjafarþing — 8. fundur,  20. feb. 2025.

breyting á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

101. mál
[19:28]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er nefnilega með þessa verkefnahópa, þetta er svolítið sem maður er að hugsa á nýjan leik, maður hefur ekki verið alveg í þessu seinni árin en hv. þingmaður hefur verið að vinna í þessum áfanga núna varðandi rammann. Það er kannski mismunandi vægi á milli hópanna en mér finnst samt skrýtið að þetta skuli ekki vera tekið alveg efnislega fyrir út frá öllum þáttum máls, þ.e. að allir verkefnahóparnir klári vinnu við alla þætti máls í sambandi við rammann. Það er svolítið áhugavert að heyra að í þessari vinnu núna hafi fjórði verkefnahópurinn, sem snýr að efnahagslega þættinum, ekki skoðað efnahagslega þáttinn varðandi möguleikana við Héraðsvötnin. Það er kannski með sama hætti og gerðist um árið með ramma 3, en út af tímaleysi þá kláruðu samfélagslegi hópurinn og efnahagslegi hópurinn, hópar þrjú og fjögur, aldrei, sú vinna var aldrei kláruð vegna þess að það var orðin svo mikil tímaþröng í því máli. Þannig að þetta er áhugavert. En eins og ég segi, þetta er grundvallarmálefni, að efnahagslegi þátturinn sé alltaf metinn, finnst mér, orkan verði verðmæti. Auðvitað viljum við öll að náttúran sé varin og við viljum öll hafa fallega náttúru. En svo er þessi öryggisþáttur sem snýr að grundvallarþjóðaröryggismálum þjóðarinnar þar sem við erum að ræða um svæði sem eru á einstöku svæði gagnvart náttúruvánni. Með Blönduvirkjun og Skatastaðavirkjun þá væri kannski komin þarna 350 MW framleiðsla. Síðan með farveginum í Blöndu, sem hefur ekki verið hægt að virkja vegna þess að það hefur ekki verið flutningskerfi til að flytja þá orku, þar eru 30 MW og þá erum við komin hátt í 400 MW á svæði sem er tiltölulega öruggt út frá náttúruvá, er mjög öruggt miðað við svo marga aðra kosti á landinu.