aðkoma stjórnvalda að kjaraviðræðum á vinnumarkaði.
Frú forseti. Höfuðáherslumál ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur er að ná niður verðbólgu og tryggja efnahagslegan stöðugleika. Nú eru liðnir tæpir þrír mánuðir af stjórnartíð þessarar nýju ríkisstjórnar og strax er komið í ljós að fram undan er hætta á uppnámi á vinnumarkaði. Þannig er vaxtalækkunarferlinu sem fyrri ríkisstjórn vann að hörðum höndum stefnt í hættu. Nú hafa bæði Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og Starfsgreinasambandsins, og Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, lýst yfir áhyggjum sínum af þeim áhrifum sem kjarasamningar kennara kunna að hafa á aðra samninga á markaði. Ljóst er að hækkanir þær sem nýr sameiginlegur kjarasamningur Kennarasambands Íslands við ríki og sveitarfélög felur í sér eru langt umfram það sem samið var um á almennum vinnumarkaði fyrir rétt tæpu ári síðan. Þeir samningar hljóðuðu upp á rúmlega 14% hækkun en samningurinn við félagsfólk Kennarasambandsins felur í sér 24,5% hækkun. Afleiðingarnar sem þessi mikli munur mun hafa, ef dregin er ályktun af orðum verkalýðsleiðtoganna sem ég nefndi hér áðan, er að það verður höfrungahlaup á vinnumarkaði. Þeim stöðugleika sem náðist á vinnumarkaði síðasta vor er nú stefnt í hættu. Efling hefur m.a. sagt að samningurinn við Kennarasambandið muni hafa áhrif á væntanlegar kjaraviðræður félagsins vegna starfsmanna í hjúkrunarstörfum. Því spyr ég hæstv. forsætisráðherra: Mun ríkisstjórnin koma til með að stíga inn í komandi kjaraviðræður á almennum vinnumarkaði til að bregðast við þessu höfrungahlaupi? Og ef svo er, þá hvernig?