156. löggjafarþing — 9. fundur,  3. mars 2025.

aðkoma stjórnvalda að kjaraviðræðum á vinnumarkaði.

[15:08]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir hlý orð í minn garð en ég saknaði svars við spurningunni. Mér finnst ljóst af orðum þeirra verkalýðsforingja sem hafa tjáð sig með opinberum hætti að þeir hafa miklar áhyggjur af þessum hækkunum sem þarna eru umfram hækkanir á almennum markaði. En í ljósi fyrirsjáanlegs óróleika á vinnumarkaði í kjölfar kennarasamninganna þá vil ég spyrja hæstv. ráðherra hvort ríkisstjórnin hyggist beita sér fyrir breytingum á vinnulöggjöfinni með það að markmiði að stuðla að friði á vinnumarkaði, m.a. með auknum heimildum ríkissáttasemjara til að tryggja að aðilar vinnumarkaðarins geti ekki hunsað miðlunartillögu ríkissáttasemjara.