156. löggjafarþing — 9. fundur,  3. mars 2025.

stefna stjórnvalda í öryggis- og varnarmálum.

[15:10]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegi forseti. Ég ætla aðeins að leiðrétta umræðuna áðan; það vantaði ekkert á stuðning fyrrverandi ríkisstjórnar við virðismatskerfið. Við settum einmitt 100 millj. kr. í það á vordögum og samþykktum í fjárlögum til þess að tryggja að hægt að fara í þessa vegferð sem ég er sammála að er góð.

En ég ætlaði nú að ræða aðrar ógnir í samfélaginu sem eru fyrst og fremst þær sem eru á alþjóðasviðinu. Við áttum hér fína umræðu í þarsíðustu viku um varnar- og öryggismál þar sem sérstaða Íslands var svolítið tónninn sem mér fannst koma frá hæstv. utanríkisráðherra. Við vorum í kjördæmaviku í síðustu viku og tónninn í fólkinu í landinu er eðlilega svona ákveðinn ótti, hræðsla, ekki síst vegna síðustu frétta sem við sáum bara í Hvíta húsinu hér á föstudaginn. Það hefur hins vegar vakið athygli fólksins í landinu að hæstv. forsætisráðherra og utanríkisráðherra eru meira og minna erlendis hjá Evrópusambandinu og í Evrópu, sem er ekki í samhengi við það að tryggja þessa sérstöðu og byggja á NATO-aðildinni og varnarsamningnum við Bandaríkin. Það er eins og það sé einhver skortur á jafnvægi. Utanríkisráðherra Frakka sagði í morgun að hætta á stríði í Evrópu, í Evrópusambandinu, hefði aldrei verið meiri. Einn af leiðtogum og þungavigtarmönnum Samfylkingarinnar, hv. þm. Dagur B. Eggertsson, vill flýta ferlinu og kjósa fyrr um aðild. Hæstv. forsætisráðherra fundar með jafnaðarmönnum, kollegum sínum, um varnarsamstarf.

Við erum herlaus þjóð, við erum í NATO, við erum með varnarsamning. Fólkið í landinu hefur verið ánægt með þá vegferð sem við höfum verið á í 80 ár. Mín spurning til hæstv. forsætisráðherra: Er ríkisstjórnin á einhverri annarri braut? Er verið að leggja áherslu á eitthvað annað heldur en það sem okkur hefur gagnast svo vel á síðastliðnum 80 árum eða bara í allri lýðveldissögunni?