156. löggjafarþing — 9. fundur,  3. mars 2025.

stefna stjórnvalda í öryggis- og varnarmálum.

[15:15]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið sem hljómar vel. En svo er það spurningin hvort verkin sem fólkið í landinu bara sér og áherslurnar sem eru gerðar, talið um að það þurfi að fara í Evrópusambandið og leita að skjóli, hvort þar sé eitthvað verið að víkja frá þessari sérstöðu sem við höfum verið með. Það er mikilvægt að vera í samstarfi við Norðurlandaþjóðirnar og NB8- ríkin. Það er mjög mikilvægt. En við erum herlaus þjóð. Ísland liggur mjög langt frá hinum löndunum, þar sem ógnin er svo sannarlega miklu meiri yfir, ekki síst Eystrasaltsríkjunum. Þannig að ég spyr hér að lokum: Eigum við ekki að setja meiri fókus á að styrkja Landhelgisgæsluna? Þar getum við lagt okkar fram, á stóru hafsvæði, sem við þurfum að gera. Þurfum við ekki að leggja meiri áherslu á að styrkja lögregluna? Ég styð ríkisstjórnina í því. (Forseti hringir.) Er það ekki vegferðin sem við eigum að fara í hér innan lands til að auka traust og öryggi fólks á Íslandi?