156. löggjafarþing — 9. fundur,  3. mars 2025.

Ummæli utanríkismálafulltrúa Evrópusambandsins og hagsmunir Íslands í varnarmálum.

[15:35]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Kaja Kallas var lengi forsætisráðherra í einu af þeim ríkjum sem eru næst Rússlandi. Þetta eru sömu ríki og vöruðu m.a. okkur Íslendinga við í öll þessi ár. Þegar við í utanríkismálanefnd sóttum erlenda fundi þá vöruðu þau okkur eindregið við því að Rússar myndu ráðast á þau eða Úkraínu eða önnur lönd. Það væri þessi hætta. Við vitum það alveg eftir Búdapestsamkomulagið 1994, þar sem Úkraínumenn gáfu af hendi kjarnorkuvopn, þeir takmörkuðu heri sína af því að það átti að tryggja þeim öryggi gagnvart innrás, m.a. frá Rússum, að ekkert af því stóð síðan eftir. Þau stóðu í rauninni bara ein eftir þannig að við verðum líka að átta okkur á hvaðan svona sterk orð koma eins og frá Kaju Kallas. Það sem ég var að draga fram er að auðvitað kom þessi fundur, sama hvaða skoðun við höfum á fundinum — það er ekkert óeðlilegt í ljósi sögunnar, í ljósi þeirra hörmunga sem kommúnisminn og Rússland, Sovétríkin gömlu, settu yfir Eystrasaltsríkin, Austur-Evrópu, að það verði hörð viðbrögð; nema hvað, segi ég.

Það sem blasir við gagnvart okkur Íslendingum, ég er búin að segja það hér áður á þessu þingi og segi það aftur: Varnarsamningurinn við Bandaríkin er önnur af tveimur grunnstoðum okkar Íslendinga þegar kemur að öryggi og vörnum landsins. Við munum reyna að gera allt til þess að svo verði áfram. Ég hef fundað m.a. með bandarískum herforingja, yfirhershöfðingja Bandaríkjanna í Evrópu, SACEUR, þar sem er verið að undirstrika nákvæmlega mikilvægi þessa góða vinasambands í öll þessi ár. Það sama gildir með NATO, hina grunnstoðina. Hvað er það sem við þurfum þá að gera núna? Við þurfum að rækta þetta enn frekar og það erum við að gera með samtölum, hvort sem þau eru óformleg eins og á öryggisráðstefnunni í München, bæði hjá forsætisráðherra og hjá mér, við önnur ríki, bæði í Evrópu og í Bandaríkjunum, (Forseti hringir.) þannig að um leið og við verðum að átta okkur á því hvaðan stór orð koma þá verðum við líka að standa við það sem við höfum skuldbundið okkur til (Forseti hringir.) og ég vona að það sé ekki að breytast hér í þessum þingsal að við stöndum með Úkraínu í þeirra baráttu.