Ummæli utanríkismálafulltrúa Evrópusambandsins og hagsmunir Íslands í varnarmálum.
Það er alveg ljóst af þessum fundi í gær að Evrópa öll er að gera það sem er búið að vera að biðja hana um að gera, réttilega, að stíga upp þegar kemur að öryggis- og varnarskuldbindingum. Fyrst voru það 2%, nú eru ríki Evrópu að gera enn meira. Það sem fundurinn í gær var líka um er að reyna að tryggja öryggi, koma með ábyrgðartryggingar og öryggistryggingar fyrir Úkraínu. Það sem kom miklu skýrar fram á þessum fundi — og núna er ég að hugsa um þær ræður sem til að mynda koma frá Miðflokknum, þá tóna sem eru að koma frá Miðflokknum hér í þessum sal á þessum skamma tíma sem þing hefur verið, að ég get ekki greint að það sé afgerandi stuðningur við frelsisbaráttu Úkraínu. Ég vona að ég sé að misskilja hlutina en mér finnst ég ekki greina afgerandi stuðning Miðflokksins þegar kemur að varnarbaráttu og frelsisbaráttu Úkraínu. Það er alla vega alveg ljóst að ríkisstjórnin stendur keik með Úkraínu til að tryggja öryggi og frelsi Úkraínu en líka til að tryggja öryggi og frelsi Evrópu. (Forseti hringir.) Við munum gera það sem þarf til að viðhalda öflugu sambandi NATO-ríkjanna. Við munum gera það sem þarf (Forseti hringir.) og Ísland getur gert þegar kemur að því að tryggja öryggi og varnir Evrópu.