156. löggjafarþing — 9. fundur,  3. mars 2025.

lokun austur/vesturbrautar Reykjavíkurflugvallar.

117. mál
[15:42]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Það er tvennt í þessari skýrslubeiðni sem ég tel vera þess eðlis að það sé eðlilegt að benda á. Í fyrsta lagi finnst mér vanta að ráðherra eigi að skoða samskipti innan þeirra stofnana sem undir hann heyra, ekki bara samskipti þeirra stofnana við Reykjavíkurborg heldur líka samskipti innan Isavia og innan Samgöngustofu, til að varpa ljósi á bakgrunn þess að umrædd ákvörðun var tekin á sínum tíma.

Í öðru lagi segir í greinargerð, með leyfi forseta:

„Lokunin er til komin vegna þess að ekki hefur mátt fella tré í Öskjuhlíð. Borgaryfirvöld hafa vitað af þessu vandamáli í a.m.k. áratug en hafa látið hjá líða að grípa til aðgerða í samræmi við samkomulag við ríkið.“

Hér er verið að gefa sér niðurstöðuna og fara rangt með. Ég vitna til að mynda í frétt Fréttablaðsins frá 14. janúar 2017 sem segir, með leyfi forseta:

„Há tré felld í Öskjuhlíð fyrir öryggi í flugi“ — þar sem er viðtal við starfsmann Reykjavíkurborgar sem útskýrir þá grisjun sem þar var að eiga sér stað. Þannig að þessar fullyrðingar eru hæpnar.

Forseti. Ég mun greiða atkvæði í þessu máli í samræmi við þær hefðir og venjur sem gilda í þinginu en vildi benda á þessi atriði.